Sunday, September 24, 2006

Og það var drengur - Myndaútgáfan

Spítalinn

Spítalalóðin séð frá bílastæðahúsinu

Stoltir og ánægðir foreldrar

Aðeins tveggja daga gamall snáði.....

Erna við hlið litla drengsins

Tveir aðdáendur virða fyrir sér stráksa litla

Gulli alltaf í boltanum....

Erna útskýrir sængurgjafirnar fyrir nýbökuðum foreldrum

Við Gulli skruppum í íbúðina til að undirbúa komu fjölskyldunnar þangað á morgun. Á leiðinni rákumst við á þennan forláta barnavagn í einum garðinum sem við keyrðum framhjá...

og Gulli var ekki lengi að skella sér á þennan góða díl.

Skruppum niður á strönd eitt kvöldið í vikunni. Mjög fallegt þar á kvöldin.


Undirritaður pósar fyrir myndavélina...

Það var töluvert líf þarna á strandstígnum um kvöldið, veitingahús, barir og fólk að hjóla og ganga í sólarlaginu....

Vinsælt að auglýsa á borðum aftaní flugvélum hér í S-Flórida

Sólarlag við ströndina

Og ein í viðbót af ströndinni.....

Húsbóndinn er búinn að finna sér prýðis lesaðstöðu fyrir mastersnámið. Bókasafn Broward sýslu sem er staðsett við hlið bæjarskrifstofna Hollywood. Takið eftir skemmtilegu litavali fyrir Ráðhúsið en svona pastelliti má sjá víða hér í S-Flórida

Inngangurinn að bókasafninu þarna til hægri á myndinni

Hér í nágrenninu rákumst við á þennan hjólhýsagarð en slíkir garðar sáust ekki í S-Miami..

Að sjálfsögðu var verslað um helgina og við hjónin búin að þefa uppi aðal-mollið á svæðinu, Aventura Moll.

Yfir og út..........

Wednesday, September 20, 2006

Uppgangur í S-Flórída o.fl..- Myndaútgáfan

Eins og áður segir er uppgangurinn mjög mikill hér í S-Flórída. Byggingar- og vegaframkvæmdir útum allt enda þarf að byggja undir allt liðið sem streymir á svæðið....
Í miðbæ Hollywood er verið að byggja tvær stórar íbúðablokkir sem verða með svipuðu fyrirkomulagi og okkar blokk.......

Í miðbæ Hollywood er stórt hringtorg með almenningsgarði í miðjunni. Þetta var mjög vinsæll garður áður en hann var lokaður vegna framkvæmda sem nú hafa staðið yfir í heilt ár. Menn eru nefnilega ekkert að flýta sér alltof mikið hérna í S-Flórída........

Kelly´s - Írski pöbbinn með skoska barþjóninum. Fyrir aftan sést byggingin okkar, sem sagt ekkert sérstaklega langt á hverfispöbbinn....

Húsið sem Erna vinnur í. Í því er skrifstofa Holland & Knight í Fort Lauderdale staðsett....

Sama hús séð frá öðru sjónarhorni..


Skrapp niður á strönd í gær til að kanna aðstæður. Leist ansi vel á aðstæður, held að þessi strönd sé mun rólegri en t.d. á South-beach sem er ágætt. Ekki margir á sveimi þarna um kl. 9 um morgun. Erum um 10 mínutur að keyra niður á strönd, eftir að taka tímann á hversu lengi maður er að hjóla þetta ;)


Önnur mynd af ströndinni, ekki margir a ferli svona snemma morguns...

Og ein svona "listræn" af ströndinni. Þarna sést hjólreiðamaður hjóla eftir stígnum sem liggur meðfram ströndinni. Hluti stígarins er merktur fyrir hjólreiðamenn og annar fyrir gangandi vegfarendur, svona eins og í Nauthósvíkinni. Mjög ánægður með slíka aðstöðu þar sem ég hjóla mikið....

Eftir strandkönnunarleiðangurinn keyrði ég meðfram strandveginum alla leið niður á South-Beach í Miami. Til Miami var ég að fara til að ná í restina af dótinu okkar í gömlu íbúðinni í S-Miami. Mjög gaman að keyra þessa leið með gamaldags útvarpsstöð í botni sem spilar Beach boys, Bítlana og aðra klassíkera.


Kominn á kunnuglegar slóðir - South-Beach Miami

Alltaf gaman að keyra brýrnar á milli South-Beach og miðbæjar Miami. Skýjakljúfarnir í miðbænum sjást þarna til vinstri. Á hægri hönd á þessari leið er Star-Island þar sem margar stórstjörnur búa, s.s. Shaq Oneil.....

Horft yfir að miðbæ Miami af einni brúnni á milli S-Beach og Miami

Þjóðvegurinn I-95 liggur framhja miðbæ Miami. Gríðarlegt mannvirki og virkar eins og vera í rússíbana. Þetta er eitthvað sem nýr meirihluti í borginni ætti að kynna sér, væri t.d. sniðugt að setja eina svona risaslaufu yfir tjörnina........

Rölti um gamla hverfið í sól og þvílíkum hita. Skrapp svo inní byggingavöruverslun og þegar ég kom út var kominn þessi líka hitaskúr. Ekki séns að ég hefði getað gengið heim í gömlu íbúðina þar sem bíllinn var. Hefði verið eins og að dýfa sér í baðkar...

Og þá bara bíður maður skúrinn af sér eins og hinir... tók ekki nema um 7 mínútur, þar eð tíminn þar til mesta rigningin gekk yfir.

Þá er þetta búið í bili. Yfir og út.........

Monday, September 18, 2006

Heimilið í Hollywood

Hér er mynd af heimilinu okkar að Van Buren stræti en nær allar götur í Hollywood heita eftir fyrrum forsetum Bandaríkjanna og því ágætis sagnfræðilexía að rölta hér um göturnar. Van Buren ku hafa verið áttundi forseti Bandaríkjanna og ansi smávaxinn(enda Bandaríkin orðin það fjölmenn á þessum tíma að það hlaut að koma að því að dvergur yrði forseti ATH: þennan brandara skilja einungis fyrrum samstarfsfélagar mínir að Tjarnargötu 12 þar sem ég starfaði í sumar, aðrir verða að leita til þeirra til að fá skýringu) hér geta áhugasamir lesið um Van Buren.

Hollywood er í um 40 mínútna fjarlægð frá Miami (Í bíl að sjálfsögðu, hvað annað?= og um 20 mínútna fjarlægð frá Fort Lauderdale þar sem Erna vinnur.

Stofan okkar. Í enda hennar eru svalir með mjög fallegu útsýni...

Útsýnið úr stofunni, aðeins meira útsýni en á Njallanum........

Horft yfir að hinni byggingunni úr stofuglugganum. Þarna er öll sameiginleg aðstaða og hægramegin fyrir miðju má sjá sundlaugina....

Og hér sést sundlaugin betur....

Og ein í viðbót af svölunum. Hér sjást skýjaklúfarnir við ströndina vel. Ég ætla að hjóla niður á strönd og fara í könnunarleiðangur um leið og við erum búin að sækja hjólið okkar til Gulla og Önnu Maríu.

Svefnherbergið er mjög rúmgott og það besta við það er að innaf því er fataherbergi, lúxus sem maður hefur aldrei búið við. Úr svefnherberginu er innangegnt á baðherbergið en annar inngangur að baðherberginu er frá stofunni/eldhúsinu...

Útsýnið út um svefnherbergisgluggann

Baðherbergið, mjög snyrtilegt og einkar ánægjulegt að hafa baðkar...


Við hlið baðherbergisins er þvottavél og þurrkari, hægt að loka fyrir með fellihurðum.

Eldhúsið er nokkurskonar krókur innaf stofunni. Allt nýtt (húsið var nb. byggt árið 2002), góð eldavél, örbylgjuofn, uppþvottavél og síðast en ekki síst stór amerískur ísskápur með klakavél og tilheyrandi.....

Gangarnir eru ansi langir enda fjölmargar íbúðir í húsinu.

Allur frágangur er mjög fínn, málverk á veggjum og fínar mubblur á göngum og í lobbýi....

Við hlið blokkarinnar er risastórt bílastæðahús þar sem við geymum kaggann okkar. Ekki laust við að maður verði doldið ringlaður í hausnum eftir að hafa keyrt í hringi upp sjö hæðir. Útsýnið frá sjöundu hæð bílakjallarans er ansi mikið og fallegt.

Hér sést í afturenda kaggans (Ford Taurus 2002) og þarna glittir í hausinn á Ernu....

Í gymminu. Oft eru tækin í svona "kondóum" léleg en þetta er alvöru. T.d. búið að gera tilraun á þessum hlaupabrettum þ.e. hvort þau þoli 115 kg stjórnmálafræðing og stóðust þau prófið með glans....

Fullt af sjálfspyndingartækjum......

Gymmið séð utanfrá...

Gengið að sundlauginni....

Sundlauginn er mjög girnileg og sólbaðsaðstaðan mjög góð. Þarna fyrir endann glittir í heita pottinn....

Heiti potturinn. Eitthvað held ég að þessi verður notaður í vetur.....

Við sundlauginna er grillaðstaða, tvö stór og flott gasgrill.....

Og aðstaða til að gúffa herlegheitunum í sig eftir að der grillmeister hefur lokið störfum...

Mynd tekin í hverfinu. Í næsta nágrenni er allt til alls, matvöruverslanir, pósthús, fullt af veitingastöðum, pöbbum ofl.

Önnur mynd úr hverfinu....

Í gær fórum við í Costo en það eru ansi magnaðar búðir eins og þeir sem lásu bloggið síðasta vetur kannast við. Ef þið haldið að jólageðveikin byrji snemma heima á Íslandi þá ættuð þið að kynna ykkur slíka gjörninga hér í USA. Dáldið súrrealískt að koma inn úr 30 stiga hita í miðjum september og það fyrsta sem maður sér eru einhverjar "kits" jólaskreytingar....

Í Costco er s.s. hægt að kaupa allan andskotann, hér er boðið uppá Costco-ferðir

Já, sem sagt hægt að kaupa allan andskotann. Ekki nóg með að hægt er að fara til augnlæknis á mjög sanngjörnu verði heldur er hægt að fara í heyrnamælingar og kaupa heyrnatæki líka....

Já, það er bókstaflega hægt að kaupa ALLT í Costo. Nýjasta nýtt er að þarna er hægt að kaupa sér líkkistu, legg til að nýja slóganið hjá Costco verði:
Costco - Frá vöggu til grafar

Látum þetta nú duga í bili, ekki víst að margir hafi haft tíma til að lesa alla leið hingað niður ;) Þangað til næst: Yfir og út..............