Kalifornía, skammtur 7 - Turlock og nágrenni partur II
Í síðari hluta dvalar okkar hjá þeim Láru og Steve í Turlock fórum við í ógleymanlega ferð til Yosemite þjóðgarðarins þar sem við upplifðum gríðarlega náttúrufegurð eins og sést á myndunum hér fyrir neðan. Seinni daginn fóru þau hjónin svo með okkur í bíltúr um uppsveitir Turlock en Turklock er staðsett í miklu landbúnaðarhéraði þar sem m.a. eru ræktaðar möndlur og ýmislegt fleira góðgæti. Náttúrufegurðin er mikil þarna í kring og stutt að keyra út í sveit. Njótið:
Á leið í Yosimite þjóðgarðinn
Leiðin uppeftir var mjög falleg

Miklar hæðir skógi vaxnar

Hér erum við að nálgast sjálfan þjóðgarðinn

Og Erna pósar af stakri snilld

Komin inn í þjóðgarðinn
Magnað að keyra frá snjóleysi í snjó á skömmum tíma, ákaflega fjölbreytt ríki verður að segjast

El Capitan í öllu sínu veldi, stórfenglegt fjall
El Capitan aftur, Yosemite formaðist svo undarlega m.a. vegna jökuls sem þarna lá yfir. Nánar um það allt hér.
Fossar í dalverpinu
El Capitan er ansi myndrænn verður að segjast

Horft inn dalinn

Hér er svo frægasta fjallið, sjálft Half Dome en klikkaðir fjallgöngumenn stunda það víst að síga niður fjallið og gista þá jafnvel á leiðinni í einhverjum börum.
Fúsmundur landkönnuður fyrir framan Half Dome

Hrafn (eða alla vegana eitthvert fuglkvekendi) á skilti fyrri framan Half Dome

Húbóndinn er orðinn svo mikill ljósmyndari eftir að hafa fengið alvöru vél í hendur að hann er í allskonar tilraunamennsku eins og hér sést. Hér var gerð tilraun til að láta líta út sem fuglinn stæði á haus Ernu en það tókst ekki betur en þetta.....
Þá er bara að gera aðra tilraun og hér lítur þetta út eins og fuglinn standi á hausnum á hinni virðulegu húsfrú
Og hér líka. Þvílíkir listrænir tilburðir hafa ekki sést á síðum internetsins síðan Al Gore fann það upp einn og óstuddur.....

Þetta var skottúr hjá okkur hjónum enda ansi kalt þarna uppi. Vorum ekki búin fyrir svona kulda enda fatnaðurinn okkar í Miami meira svona sandalar, stuttbuxur og sundskýla. Við stoppuðum þó í dalnum í um tvo tíma og skoðuðum okkur um. Það er hinsvegar auðveldlega hægt að eyða mörgum vikum þarna því gönguleiðirnar eru óteljandi. Fólk kemur þarna á sumrin og tjaldar eða gistir á hótelum eða gistiheimlium og gengur út frá dalnum....

El Capitan kvaddur

Á leið út úr dalnum

Komin heim til Turlock og náttúrulega opnuð rauðvínsflaska um leið og heim var komið þar sem Kalifornía er jú heimaríki þess eðaldrykkjar og um að gera að notfæra sér það....
Erna alltaf jafn fúl eins og þar stendur
Fúsmundurinn orðinn rauðvínsrauður á vörum....
Í götunni hjá Láru og Steve. Bílaleigubíllinn okkar góði...
Tuffy töffari
Lára og Steve fyrir utan húsið þeirra
Og Erna bætist í hópinn. Þarna vorum við að leggja af stað í skemmtilegan bíltúr um nærsveitir Turlock

Í kringum Turlock er blómlegur landbúnaður stundaður
Ég og Tuffy en við urðum miklir mátar

Horft yfir sveitina af hæð sem við keyrðum upp á
Tuffy Lára og Erna í þvílíku dúndurstuði að það hálfa væri miklu meira en nóg
Örn, hrafn eða hvað þetta nú var flaug tignarlega yfir okkur

Erna og Steve horfa yfir sveitina

Skemmtilegar skýjamyndanir
Þau sýndu okkur svo hálfgerðan eyðibæ þarna í sveitinni. Þar höfðu þau aldrei séð fólk á sveimi en þegar við komum sáum við 2 eða þrjár manneskjur sem teljsta tímamót á þessum slóðum.....

Bærinn heitir Hornitos og var víst stofnaður af einhverjum Mexíkönskum útlögum á sínum tíma

Frekar svona spúkí bær verður að segjast. Væri ekki til í að ganga þarna um í rökkri. Búuúúúú
Kaffihús staðarins var að sjálfsögðu ekki opið

Kíktum svo á skólalóðina hjá háskólanum í Turlock sem Lára var í. Mjög fallegur campus.
Lára og Tuffy pósa

Tuffy töffari með meiru

Hux
Missið ekki af æsispennandi áttundu og síðustu færslu þessa maraþonsbloggs.....

0 Comments:
Post a Comment
<< Home