Íshokkí í Flórída - Myndir
Á fimmtudagskvöldið var okkur boðið út að borða af einum eiganda lögmannsstofunnar, hinni norskættuðu Connie. Hún og maðurinn hennar buðu okkur fyrst í fordrykk í íbúð þeirra sem er staðsett norðan við Fort Lauderdale. Íbúðin er á 23. hæð og blokkin liggur alveg við ströndina og eru þau með útsýni útá haf, yfir ströndina og meira að segja inní land. Magnað alveg verður að segjast. Tilefnið var að sænskur strákur sem hafði verið að vinna á skrifstofunni fyrir einhverjum árum var á svæðinu ásamt konu sinni og var þeim boðið ásamt okkur (norrænt þema greinilega). Hér er mynd af hópnum mínus ég, frá vinstri: Dave, Connie, Carl Fredrik, Jenny og Erna.
Unga fólkið: Carl, Jenny, Erna og ég
Dave er hættur að vinna en sinnir fjárfestingum heiman frá sér. Skrifstofan er með útsýni beint útá sjó og með flottari vinnuaðstöðum sem undirritaður hefur séð. Hér tekur hann niður pantanir á drykkjum og þau virðast nokkuð ánægð með það hjónin. Það kom í ljós þegar leið á kvöldið að öll áttum við það sameiginlegt að hafa gifst á síðasta ári. Reyndar komu þarna annað par líka, ritari Connie og maður hennar sem eru Bretar sem fluttu til US fyrir um 30 árum síðan, og þau höfðu gifst nokkrum árum á undan okkur hinum eða fyrir c.a. 30 árum síðan. Breski karlinn var ansi skemmtilegur (því miður náði ég ekki myndum af þeim) og náði ég að ræða við hann heilmikið. Kom í ljós að hann er ágætis vinur Johns Prescotts aðstoðarforsætisráðherra Bretlands. Hafði verið með honum til sjós í um sex ár þegar þeir voru ungir og hafa þeir alltaf haldið sambandi síðan. Bretinn (sem ég man ekki alveg í augnablikinu hvað heitir) var góður sögumaður og mikill húmoristi og stóð hann eiginilega uppúr hjá undirrituðum eftir þessa annars frábæru kvöldstund....
Útsýnið af svölunum, séð yfir ströndina
Horft inn til lands
Á þriðjudaginn var Halloween. Það var mikið skreytt í vinnunni hennar Ernu af þessu tilefni og hér er eitt dæmið um það...
Móttakan vel skreytt að hætti kanans..
Þessi er ekki árennileg
Á föstudaginn síðasta bauð skrifstofan krökkum úr fátæktarhverfi í Fort Lauderdale á skrifstofuna þar sem þeim var boðið uppá pizzur, halloween nammi og litabækur. Þetta er hluti af verkefni sem stofan tekur þátt í. Þau tóku að sér einn bekk í þessu hverfi og fara t.d. í skólann og lesa fyrir þau. Erna bauð sig fram í þetta verkefni og um daginn fór hún í skólann ásamt samstarfsfélögum sínum og las upp fyrir krakkana. Þá gáfu þau þeim m.a. bækur og voru krakkarnir ákaflega þakklátir. Það stóð nú til að Erna myndi blogga um þetta en ekki hefur tekist enn að fá hana í að blogga einn einasta staf og gerist ég því bara fréttaritari hennar. En vonandi eigið þið eftir að upplifa a.m.k. eitt blogg ættað frá henni í nánustu framtíð ;)
Hér er Erna ásamt hluta af samstarfsfélögunum sem taka þátt í verkefninu. Hún fellur vel inní amerísku staðalmyndina......
Ein af krökkunum
Krakkarnir við fundarborðið hjá Holland & Knight. Þið kannski takið eftir því að það er ekki einn einasti hvítur krakki í þessum hóp. Já, maður er farinn að átta sig á því að fátkækt og litarháttur fer ansi mikið saman hér í US og aðskilnaðurinn er miklu meiri en maður gerði sér grein fyrir áður en við fórum út. Skilin á hverfunum eru oft gríðarlega skýr. Þú keyrir eftir einhverri götu og alltíeinu eru allir svartir í því hverfi sem þú ert staddur í. Og þá fer það saman að þar er mikil fátækt, hreinlega sérð það á húsunum og bílunum fyrir utan. Þetta er eitt af því sem komið hefur hvað mest á óvart hér í US. Þessi aðskilnaður. Ríka fólkið (sem er að mestu hvítt) býr í fínu hverfunum og yfirleitt með einhverja auka gæslu til að halda lýðnum úti en fátæka fólkið (sem er að stærstum hluta svart) býr í óhrjálegum hverfum þar sem fólk hættir sér ekki inn vegna hræðslu við glæpi. Nú er þetta auðvitað ekki alveg svona klippt og skorið en þetta fær maður á tilfinninguna eftir þessa dvöl hér. Gríðarleg misskipting.

Þessir voru nokkuð sáttir við heimsóknina.....
Og þessi líka
Ferskleikinn í fyrirrúmi
Á föstudaginn fórum við s.s. í happy hour í hverfinu en engar myndir eru frá því kvöldi. Á laugardagsmorguninn fórum við hinsvegar í stærsta "moll" á svæðinu sem heitir Sawgras Mills. Ég hef aldrei séð (eða réttara sagt ekki séð þar sem við sáum aðeins um 10% mollsins) eins stórt mall. Skoðuðum kortið af því og þetta virkar meira eins og heilt bæjarfélag. Náðum aðeins að skoða um 10% af svæðinu og ég spái því að við förum þarna aftur. Versluðum ekki mikið en vorum þó ánægð með árangurinn....
Við mollið er veitingastaður sem var ansi gaman að koma á. Góður matur og skemmtilega hannaður staður.
Leiktækjasvæði í mollinu
Séð inn eftir einum af fjölmörgum göngum í mollinu
Sólarlagsmynd tekin út af svölunum heima á laugardagskvöldið
Og þessi var tekin efst í bílastæðahúsinu okkar
Á sunnudaginn byrjuðum við daginn með að fara niður á Hollywood ströndina að ganga
Fuglahópur sem flaug yfir
Einhver hátið var í gangi og þessum ostakalli hefur örugglega verið sæmilega heitt..
Settumst niður á einu af hótelunum og fengum okkur sunday-brunch tilboð sem ég mæli með að fólk þefi uppi hér í US. Hljómsveit spilaði jazz fyrir matargesti...
Ein listræn af ströndinni

Þyrlur eru ansi oft sveimandi um hér á svæðinu. Hér er ein á ströndinni...
Dæmigert litaval á húsum hér. Pasellitirnir frægu.......
Á sunnudagseftirmiðdaginn tókum við hús á litlu fjölskyldunni í S-Miami. Litli fallegi drengurinn er allur að stækka og nauðsynlegt að taka stöðuna öðru hverju. Borðuðum sman og höfðum það kósi...
Gulli var að koma úr bakaðgerð og var því ekki alveg eins og hann á sér að vera. Er heima í veikindaleyfi núna meðan hann jafnar sig...
Faðir og sonur
Móðir og sonur
Á þriðjudaginn (halloween kvöld) var okkur boðið óvænt á íshokkíleik í NHL deildinni. Raúl vini okkar hafði áskotnast nokkrir miðar og bauð okkur hjónum með. Þarna áttust við Pardusdýrin og Hákarlarnir og því miður töpuðum við á síðustu metrunum en það var þrælgaman að prufa að fara á svona leik....
Mikil átök eru í íshokkí og lítur út fyrir (fyrir leikmann) að það megi hreinilega allt
Erna, Marianna og Raúl
Við hjónin á okkar fyrsta íshokkíleik. Við gerðum þau byrjendamistök að mæta á bolum í höllina en það var ansi kalt þarna (svona miðað við hvernig það var utandyra).
Raúl og Marianna
Og við....
Það er enginn almennilegur kappleikur í US án klappstýra. Hér eru nokkrar og aldrei þessu vant voru þær ekki á vellinum enda sennilega doldið erfitt að dansa á svellinu...
Lukkudýrið slóst í hópinn með þeim...
Lukkdýrið (sem að sjálfsögðu er Pardusdýr) mætti auðvitað í grímubúning..
Búúúú
Hann fékk ungabarn lánað hjá einum áhorfandanum
Veit ekki hvort ég hefði treyst svona draugi fyrir barninu mínu.....
Holl tvö af klappstýrum á leið í stúkuna...
Slagsmál....Búið..............



1 Comments:
skemmtilegt
Post a Comment
<< Home