Heimilið í Hollywood
Hér er mynd af heimilinu okkar að Van Buren stræti en nær allar götur í Hollywood heita eftir fyrrum forsetum Bandaríkjanna og því ágætis sagnfræðilexía að rölta hér um göturnar. Van Buren ku hafa verið áttundi forseti Bandaríkjanna og ansi smávaxinn(enda Bandaríkin orðin það fjölmenn á þessum tíma að það hlaut að koma að því að dvergur yrði forseti ATH: þennan brandara skilja einungis fyrrum samstarfsfélagar mínir að Tjarnargötu 12 þar sem ég starfaði í sumar, aðrir verða að leita til þeirra til að fá skýringu) hér geta áhugasamir lesið um Van Buren.
Hollywood er í um 40 mínútna fjarlægð frá Miami (Í bíl að sjálfsögðu, hvað annað?= og um 20 mínútna fjarlægð frá Fort Lauderdale þar sem Erna vinnur.
Stofan okkar. Í enda hennar eru svalir með mjög fallegu útsýni...
Útsýnið úr stofunni, aðeins meira útsýni en á Njallanum........
Horft yfir að hinni byggingunni úr stofuglugganum. Þarna er öll sameiginleg aðstaða og hægramegin fyrir miðju má sjá sundlaugina....
Og hér sést sundlaugin betur....
Og ein í viðbót af svölunum. Hér sjást skýjaklúfarnir við ströndina vel. Ég ætla að hjóla niður á strönd og fara í könnunarleiðangur um leið og við erum búin að sækja hjólið okkar til Gulla og Önnu Maríu.
Svefnherbergið er mjög rúmgott og það besta við það er að innaf því er fataherbergi, lúxus sem maður hefur aldrei búið við. Úr svefnherberginu er innangegnt á baðherbergið en annar inngangur að baðherberginu er frá stofunni/eldhúsinu...
Útsýnið út um svefnherbergisgluggann
Baðherbergið, mjög snyrtilegt og einkar ánægjulegt að hafa baðkar...

Við hlið baðherbergisins er þvottavél og þurrkari, hægt að loka fyrir með fellihurðum.
Eldhúsið er nokkurskonar krókur innaf stofunni. Allt nýtt (húsið var nb. byggt árið 2002), góð eldavél, örbylgjuofn, uppþvottavél og síðast en ekki síst stór amerískur ísskápur með klakavél og tilheyrandi.....
Gangarnir eru ansi langir enda fjölmargar íbúðir í húsinu.
Allur frágangur er mjög fínn, málverk á veggjum og fínar mubblur á göngum og í lobbýi....
Við hlið blokkarinnar er risastórt bílastæðahús þar sem við geymum kaggann okkar. Ekki laust við að maður verði doldið ringlaður í hausnum eftir að hafa keyrt í hringi upp sjö hæðir. Útsýnið frá sjöundu hæð bílakjallarans er ansi mikið og fallegt.
Hér sést í afturenda kaggans (Ford Taurus 2002) og þarna glittir í hausinn á Ernu....
Í gymminu. Oft eru tækin í svona "kondóum" léleg en þetta er alvöru. T.d. búið að gera tilraun á þessum hlaupabrettum þ.e. hvort þau þoli 115 kg stjórnmálafræðing og stóðust þau prófið með glans....
Fullt af sjálfspyndingartækjum......
Gymmið séð utanfrá...
Gengið að sundlauginni....
Sundlauginn er mjög girnileg og sólbaðsaðstaðan mjög góð. Þarna fyrir endann glittir í heita pottinn....
Heiti potturinn. Eitthvað held ég að þessi verður notaður í vetur.....
Við sundlauginna er grillaðstaða, tvö stór og flott gasgrill.....
Og aðstaða til að gúffa herlegheitunum í sig eftir að der grillmeister hefur lokið störfum...
Mynd tekin í hverfinu. Í næsta nágrenni er allt til alls, matvöruverslanir, pósthús, fullt af veitingastöðum, pöbbum ofl.

Önnur mynd úr hverfinu....
Í gær fórum við í Costo en það eru ansi magnaðar búðir eins og þeir sem lásu bloggið síðasta vetur kannast við. Ef þið haldið að jólageðveikin byrji snemma heima á Íslandi þá ættuð þið að kynna ykkur slíka gjörninga hér í USA. Dáldið súrrealískt að koma inn úr 30 stiga hita í miðjum september og það fyrsta sem maður sér eru einhverjar "kits" jólaskreytingar....
Í Costco er s.s. hægt að kaupa allan andskotann, hér er boðið uppá Costco-ferðir
Já, sem sagt hægt að kaupa allan andskotann. Ekki nóg með að hægt er að fara til augnlæknis á mjög sanngjörnu verði heldur er hægt að fara í heyrnamælingar og kaupa heyrnatæki líka....
Já, það er bókstaflega hægt að kaupa ALLT í Costo. Nýjasta nýtt er að þarna er hægt að kaupa sér líkkistu, legg til að nýja slóganið hjá Costco verði:
Costco - Frá vöggu til grafar
Látum þetta nú duga í bili, ekki víst að margir hafi haft tíma til að lesa alla leið hingað niður ;) Þangað til næst: Yfir og út..............

1 Comments:
Hæ, mér líst rosalega vel á íbúðina, er komin til ykkar í huganum. Og "lilli" er algjört krútt. Ég vissi ekki að þið byggjuð í Hollywood hélt fyrst að ég væri orðin a l v a r l e g a rugluð.
Bestu kveðjur, Gunna og Co.
Post a Comment
<< Home