Monday, October 16, 2006

Hið ljúfa líf - Myndir

Vatnasport á laugardeginum. Fólk er dregið áfram af einskonar skíðalyftu sem fer í ferhyrning í kringum vatnið. Hægt að vera á vatnsbrettum sem eru mjög svipuð skíðabrettum (ekki lokaðir klossar reyndar ;)), sjóskíðum/vatnsskíðum eða sitja á bretti sem allir byrjendur verða að ganga í gegnum fyrst


Lagt af stað í græjuna



Það er betra að detta nálægt upphafsstað því annars þarf að ganga í kringum hálft vatnið

Þessi var með allskyns hundakúnstir....

Og hér er hann að lenda...

Raúl mættur, hress að vanda...

Raúl og Maríanna

Nágranni þeirra hjóna með hund sinn Google

Húsbóndinn að láta slíta af sér hendurnar...

Hélt ég myndi aðeins fara einn hring á hnjánum og væri þá til í brettin eða sjóskíðin. Þetta reyndist hinsvegar töluvert erfiðara en það leit út fyrir.......

Húsbóndinn í basli við að halda sínum stóra búk á brettinu, heppinn að hendurnar eru ennþá fastar við búkinn.....

Hússtýran í sama pakka....

Og hér líka..........

Closup, þvílík tilfþrif....


Nágranni þeirra hjóna, Maríanna og Raúl.....

Hundurinn Google


Sportfús.........

Raúl á sjóskíðum eða kannski frekar vatnsskíðum.....



Um kvöldið buðum við Raúl og Maríönnu í lambalæri með grænum baunum, rauðkáli og alles. Húsbóndinn hafði flutt herlegheitin alla leið frá landi elds og ísa. Þeim fannst maturinn mjög góður.....

Gáfum þeim myndabók um Ísland

Raúl kenndi okkur á timerinn á myndavélinni og stillti vélinni upp fyrir þessa töku

Raúl er mjög forvitinn og fróðleiksfús. Hann hafði gaman að því að lesa upp íslensku heitin á Nóa konfektmolunum en oft á tíðum voru þau óskiljanleg í hans meðförum....

Önnur timer mynd.....

Fórum niður á strönd í bröns og sólbað á sunnudeginum og rákumst þá á þessa graskerjasölu

Halloween er nefnilega á næsta leiti..


Og þá er nauðsynlegt að eiga a.m.k. eitt grasker eða svo

Fórum á frábæran stað í bröns. Hann er rétt við ströndina hér í Hollywood og hægt að sitja úti á verönd með útsýni yfir "intracoastal" þ.e. sund sem er á milli strandarinnar og fastalandsins. Gaman að horfa á snekkjurnar fara framhjá og sunday bröns er þekkt fyrirbrygði hér á svæðinu, algjör snilld og þvílíkt góður matur....

Erna alltaf jafn fúl.......

Bátarnir fóru framhjá í hrönnum enda fáir staðir á jarðarkringlunni sem hafa eins marga báta per íbúa og S-Florida

Þjónninn tók þessa......

Þessi var flott






Það þarf engan 66 gráðu norður klæðnað til að vera úti á báti hér í S-Flórida

Lögðumst svo í sólbað á ströndina hér í Hollywood eftir góðan bröns.....


Fullt af fólki í góðviðrinu


Hið ljúfa líf..............

Erna úti í sjó


Fúsmundurinn pósar........ múhahaha

Yfir og út.......

0 Comments:

Post a Comment

<< Home