Wednesday, September 20, 2006

Uppgangur í S-Flórída o.fl..- Myndaútgáfan

Eins og áður segir er uppgangurinn mjög mikill hér í S-Flórída. Byggingar- og vegaframkvæmdir útum allt enda þarf að byggja undir allt liðið sem streymir á svæðið....
Í miðbæ Hollywood er verið að byggja tvær stórar íbúðablokkir sem verða með svipuðu fyrirkomulagi og okkar blokk.......

Í miðbæ Hollywood er stórt hringtorg með almenningsgarði í miðjunni. Þetta var mjög vinsæll garður áður en hann var lokaður vegna framkvæmda sem nú hafa staðið yfir í heilt ár. Menn eru nefnilega ekkert að flýta sér alltof mikið hérna í S-Flórída........

Kelly´s - Írski pöbbinn með skoska barþjóninum. Fyrir aftan sést byggingin okkar, sem sagt ekkert sérstaklega langt á hverfispöbbinn....

Húsið sem Erna vinnur í. Í því er skrifstofa Holland & Knight í Fort Lauderdale staðsett....

Sama hús séð frá öðru sjónarhorni..


Skrapp niður á strönd í gær til að kanna aðstæður. Leist ansi vel á aðstæður, held að þessi strönd sé mun rólegri en t.d. á South-beach sem er ágætt. Ekki margir á sveimi þarna um kl. 9 um morgun. Erum um 10 mínutur að keyra niður á strönd, eftir að taka tímann á hversu lengi maður er að hjóla þetta ;)


Önnur mynd af ströndinni, ekki margir a ferli svona snemma morguns...

Og ein svona "listræn" af ströndinni. Þarna sést hjólreiðamaður hjóla eftir stígnum sem liggur meðfram ströndinni. Hluti stígarins er merktur fyrir hjólreiðamenn og annar fyrir gangandi vegfarendur, svona eins og í Nauthósvíkinni. Mjög ánægður með slíka aðstöðu þar sem ég hjóla mikið....

Eftir strandkönnunarleiðangurinn keyrði ég meðfram strandveginum alla leið niður á South-Beach í Miami. Til Miami var ég að fara til að ná í restina af dótinu okkar í gömlu íbúðinni í S-Miami. Mjög gaman að keyra þessa leið með gamaldags útvarpsstöð í botni sem spilar Beach boys, Bítlana og aðra klassíkera.


Kominn á kunnuglegar slóðir - South-Beach Miami

Alltaf gaman að keyra brýrnar á milli South-Beach og miðbæjar Miami. Skýjakljúfarnir í miðbænum sjást þarna til vinstri. Á hægri hönd á þessari leið er Star-Island þar sem margar stórstjörnur búa, s.s. Shaq Oneil.....

Horft yfir að miðbæ Miami af einni brúnni á milli S-Beach og Miami

Þjóðvegurinn I-95 liggur framhja miðbæ Miami. Gríðarlegt mannvirki og virkar eins og vera í rússíbana. Þetta er eitthvað sem nýr meirihluti í borginni ætti að kynna sér, væri t.d. sniðugt að setja eina svona risaslaufu yfir tjörnina........

Rölti um gamla hverfið í sól og þvílíkum hita. Skrapp svo inní byggingavöruverslun og þegar ég kom út var kominn þessi líka hitaskúr. Ekki séns að ég hefði getað gengið heim í gömlu íbúðina þar sem bíllinn var. Hefði verið eins og að dýfa sér í baðkar...

Og þá bara bíður maður skúrinn af sér eins og hinir... tók ekki nema um 7 mínútur, þar eð tíminn þar til mesta rigningin gekk yfir.

Þá er þetta búið í bili. Yfir og út.........

0 Comments:

Post a Comment

<< Home