Túrhestar á heimaslóðum II - Myndaútgáfa
Á föstudaginn fórum við í kokteil á vegum lagadeildarinnar í UM. Janet sem er yfir LLM prógramminu var svo elskuleg að bjóða öllum frá síðasta ári sem staðsettir eru í S-Flórída með. Hér erum við á leiðinni til Miami á I-95 en ef grannt er skoðað sést "bumper to bumper" stemmningin á norðuleiðinni. Svona er traffíkin hér í Miami á álagstímum. Gaman gaman........
Komin niður í miðbæ Miami sem er alltaf að taka á sig meiri og meiri stórborgarmynd. Mikið byggt þarna og í framtíðinni mun þetta líkjast meir og meir háhýsaklasanum á Manhattan.
Þeir sem voru á svæðinu í bekknum hennar Ernu auk nokkura sem eru á þessu ári. Þarna má sjá snillinga eins og Ernu, Raúl (venesúela), Gustavo (venesúela), Tatjönu frá Rússlandi, Lilly frá Columbíu og manninn hennar og Consúelu sem er líka frá Kólumbíu.
Önnur mynd af hópnum...
Raúl alltaf jafn athyglissjúkur. Fyrir þá sem ekki lásu bloggið síðasta vetur þá er hann algjör snillingur, er frá Venesúela og er þvílíkt hress og skemmtilegur. Við erum að fara með honum og konu hans á sjóskíði um helgina og svo á að koma hingað heim að borða lambalæri sem húsbóndinn flutti inn til landsins ásamt grænum baunum og rauðkáli..............ummmmm
Ég, mamma, Raúl og Marianna kona Raúl. Mamma kom með í kokteilinn og hafði gaman að..........
Billy sem starfar fyrir lagadeildina og sér m.a. um að skipuleggja svona samkundur. Við hlið hennar er norsk stelpa sem ég man ekki alveg hvað heitir en hún var í LLM prógramminu áður en Erna fór í það og var þá ágætis vinkona Erlu vinkonu Ernu...........
Billy, sú norska og svo Janet Stern sem er yfir LLM prógramminu
Sú norska ásamt Pablo (held hann heiti það) eiginmanni Lilly
Ég ásamt Tatjönu frá Rússlandi og "Míamískum" eiginmanni hennar
Ég og Erna - alltaf jafn fúl eitthvað
Ég og mamma
Stelpa sem ég man ekki hvað heitir, Lilly frá Kólubíu, Erna og Billy
Lilly, eiginmaður hennar sem ég held að heiti Juan Pablo og svo Gustavo snillingur frá Venesúela...
Gustavo og Erna
Erna og Lilly á trúnó
Mamma, Erna og Lilly
Mamma og Lilly ansi þungar á brún... ;)
Og þið kannist við liðið
Erna alltaf jafn fúl....
mamma hafði bara þrælgaman að þessu hressa fólki
Og áfram á trúnó......
Mamma við sundlaugina á laugardeginum
Smókí Gonzales
Á laugardaginn fór ég með mömmu niður á strönd hérna í hverfinu, erum um tíu mínutur að keyra þangað
Hér er fyrsta myndinn fyrir Óla....
Mjög margir voru á ströndinni í þetta skiptið enda laugardagur og frábært veður
Önnur fyrir Óla, get sent honum þessa í betri upplausn ef hann vill....
Og þriðja myndinn fyrir Óla
Eitthvað held ég að við eigum eftir að nýta okkur þessa aðstöðu í vetur....
Ástarlíf turtildúfna.... og svo er þarna ein fyrir Óla líka, viss um að hann hafi smekk fyrir þessari.....
Tilhugalífið hélt áfram hjá blessuðum dúfunum...
Nauthólsvíkin hvað?
Fólk á rölti og allir ansi afslappaðir og í góðu skapi
Hægt að leigja ýmis farartæki til að ferðast um á strandstígnum

Mamma kann best við sig í sól.........
Og enn ein fyrir Óla......
Ánægð með þetta allt saman
Fuglar á flugi meðfram ströndinni

Fengum okkar léttan snæðing í sólinni...
Og þessi líka handa Óla, held þetta sé sú síðasta.......
Nei, ein enn......
Goodyear loftbelgurinn flaug framhjá




Einn að koma úr köfun.....
Krakkar í strandblaki
Veitingastaðurinn sem við fórum á
Á laugardagskvöldið fórum við á veitingastað á South-Beach sem er mjög góður. Hann heitir Tapas y Tinto og er tapasstaður eins og einhver hefur kannski fundið út. Ákaflega góður veitingastaður sem við mælum eindregið með. Það er alltaf upplifun að koma niður á South Beach á helgarkvöldum og mamma hafði sérstaklega gaman að þessu kvöldi........
Erna og mamma á staðnum góða
Hópmynd
Og önnur af skvísunum
Og viti menn, bara mynd af Fúsanum. Ekki oft sem það gerist....
Eftir matinn var boðið uppá Flamengo dans. Ákaflega flott hjá stúlkunum tveimur sem hann sýndu....
Mamma var ansi ánægð með þetta kvöld eins og áður sagði......
Á sunnudaginn fórum við í Íslendingafélagspylsupartý hér í nágrenninu. Þessi þarna heitir Bíbí og mamma spjallaði mikið við hana. Það var í raun algjör tilviljun að við fórum á þessa samkundu en ég og mamma rákumst á Íslending á veitingastað í hverfinu sem sagði okkur frá þessu og þá var ekki aftur snúið.....
Matti heitir formaðurinn og honum á vinstri hlið er Sigtryggur sem býr í Fort Lauderdale
Man ekki hvað þessi heitir en hann var hress
Bandaríski, flórídanski og íslenski fáninn blöktu við hún...
Mamma hitti gamla skólasystur sína úr Hafnarfirðinum þarna (man ekki hvað hún heitir). Það fór vel á með þeim og þetta sannar enn og aftur hvað Ísland er lítið land......
Dregið var í happdrætti þar sem vinningarnir voru flestir í formi kjöts og fisks frá Íslandi.
Á sunnudagskvöldið fórum við mamma á opnun mikillar tónlistar- og listamiðstöðvar hér í Miami sem er stórglæsileg, einskonar tónlistar- og ráðstefnuhús þeirra Miamibúa.
Í húsinu er m.a. stór og glæsilegur óperusalur, aldrei að vita nema maður skelli sér á eins og eina óperu í vetur...
Salurinn góði, fullt af svölum fyrir fína og ríka fólkið....

Lokakvöldið, fórum út að borða á stað í hverfinu okkar
Mamma ansi sátt með ferðina þrátt fyrir leiðinda óhapp á fjórða degi
Við þrjú á lokakvöldinu

0 Comments:
Post a Comment
<< Home