Thursday, October 05, 2006

Túrhestar á heimaslóðum - Myndaútgáfa

Eitt af allra fyrstu kvöldunum. Fórum á veitingastað sem er eiginlega í bakgarðinum hjá okkur og er núna í miklu uppáhaldi hjá mömmu.

Fór með múttu í blómabúð hér hinum megin við götuna. Þar tók á móti okkur belgísk kona sem þótti mikið til koma að við værum frá Íslandi og leysti okkur út með mikið af túristakortum. Eins og þið sjáið þá er doldið kaótískt hjá henni og kannski ætti hún að ráða innanhúsarkítekt til að einfalda þetta aðeins ;)

Mamma úti á svölum.

Við höfum tekið eftir því eftir rúma ársdvöl í US að hundaeign er afar algeng hér. Höfum heyrt nokkrar kenningar um af hverju þetta stafi og ætla ég að koma með sér blogg um þetta stórmál á næstunni...........

Sönnunargagn B........

Listræn mynd úr hverfinu sem ég hef Ernu sterklega grunaða um að hafa tekið

Við mæðginin á einum af fjölmörgum veitingahúsum í hverfinu

Við sundlaugina okkar

Fórum í Target á laugardaginn (daginn sem mamma snéri sig) en Target er algjör snilld fyrir þá sem ekki vita (Berglind vinkona Ernu er til dæmis í alvarlegu "targetfráhvarfi" heima á skerinu eftir að hafa notið dyggrar þjónustu þeirra síðastliðin 6-7 ár).........

Þeir bjóða óheppnum viðskiptum eins og múttu uppá rafmagnsdrifna bíla með kerru, ekki amalegt að bruna um búðina á þessu tryllitæki........

Og þá var bara að vinda sér í það sem við Íslendingar erum bestir í, þ.e. að versla.....

"Halloween" er á næsta leyti og hægt að kaupa ýmsan hrollvekjandi varning fyrir það tilefni....

Erna og mamma fóru í siglingu frá Fort lauderdale á sunnudaginn á meðan húsbóndinn lærði, hér er svæðið þar sem lagt er uppí siglinguna.

Báturinn sem siglt var á

Á Siglingu

Komnar um borð

Bátafjöldi í S-Flórida er með því mesta sem gerist í heiminum....


Ein villan sem varð á leið þeirra...

Og önnur.........

Ekki amalegur bústaður þetta

Það er til eitthvað af fólki sem á bót fyrir rassgatið á sér hér á svæðinu...

Mamma ætlar að kaupa þesssa villu ;)

Þessi er líka skítsæmileg

Hér í S-Flórida er eins og áður segir mikið um báta og þeir þurfa að komast leiðar sinnar og þá er umferðin bara stoppuð og bátarnir fá forgang

Við mútta drápum tímann á meðan við biðum eftir enn einum lækninum á rússneskku kaffihúsi sem seldi einnig "gúrme" vörur

Þarna var vond lykt, vont kaffi og rússnesk teiknimynd glumdi í sjónvarpinu. Doldið súrrealískt konsept verður að segjast.....

Rússnesk kjötsúpa, gjörðu svo vel......

Í miðbæ Miami er ein og ein brú sem hleypir skútunum og öðrum bátum í gegn á kostnað umferðarinnar...

Keyrðum út í Key Biscayne sem er útivistareyja í Miami. Á bakaleiðinni sést yfir miðbæ Miami og er það ansi mögnuð sýn....

Skýjakljúfar Miami séð frá brúnni milli Miami og Key Biscayne

Á South-Beach. Takið eftir rónanum fyrir aftan. Íklæddur jólasveinabúningi og þegar við síðan fórum framhjá hrópaði hann; "merry christmas, it never ends". Snillingur verð ég að segja. Ef ég verð einhverntíman róni þá bið ég ykkur vinsamlegast um að senda mig til South-Beach....

Við mæðginin á South-Beach. Við leigðum hjólastól handa mömmu til þess að geta náð almennilegri yfirferð í túristabransanum ;)

Fólk á snilldartæki sem maður stendur uppréttur á og hallar sér í þá átt sem maður vill fara. Hægt að leigja þetta á S-Beach og stefni ég á að gera það við tækifæri......

South-Beach ströndin er fræg fyrir hvítan sand og lúxuslíf...



Múttu leist ansi vel á þetta enda mikill sólardýrkandi....

Skemmtilegur bar á S-Beach með sundlaug og alles...

Fórum á taílenskan stað í nágrenninu í gær, mjög góður matur á sanngjörnu verði.
Yfir og út.................................

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

frábærar myndir !

bestu kveðjur
Gunna.

9:25 AM  
Anonymous Anonymous said...

Gaman að fá að skoða myndir frá ykkur og fá að fylgjast smá með:)

Bið að heilsa.
Kveðja Kristín

8:03 AM  
Anonymous Anonymous said...

Bið að heilsa jólasveininum

12:34 PM  

Post a Comment

<< Home