Monday, November 13, 2006

Nýr myndaskammtur

Myndatexti eftir Ernu (fyrsta skiptið ;)):

Laugardaginn 4. nóvember skelltum við okkur á grískan stað hér í nágrenninu sem er víst alveg búinn að slá í gegn. Við höfðum heyrt að þar væri dans og söngur í hávegum hafður. Brá okkur heldur í brún þegar við mættum og ekki nóg með að DJ þeytti skífur þannig að ekki var hægt að tala saman öðruvísi en á táknmáli og fólk vílaði ekki fyrir sér að dansa uppi á borðum! Hér er magadansmær að leiða dansinn!

Sigfús áhyggjufullur á svip yfir að hljóðstyrkur tónlistarinnar væri yfir löglegum mörkum Florida-fylkis!


Erna hins vegar glaðleg enda dansgefin með eindæmum

Leikar teknir að æsast á Opa Taverna

... enn fleiri komnir upp á borð..

og servíettur flugu um salinn

..og enduðu líf sitt á gólfinu.

Fleiri að reyna sig í borðdansi.

Magadansmær með þokkalegar hreyfingar.

Búin að ná einhverjum upp á borð.

Að lokum var allt borðið komið í dansinn.Þetta er bókabúð hér í hverfinu. Okkur fannst skemmtilegt að grúskarar væru boðnir sérstaklega velkomnir. Þá er líka hægt að kaupa bækurnar sem eru úti þó enginn sé að vinna. Þá skilur maður bara pening eftir í þartilgerðum kassa!

Sunnudaginn 5. nóvember fórum við að skoða fen hér í nágrenninu
en þessi 'boardwalk' liggur í gegnum fenin.


Vatnakrabbi sem býr í fenjunum.

Gönguplankinn

Hér eru kaupmenn að komast í jólastuð og byrjaðir að
skreyta trén með jólaseríum.

Föstudaginn fórum við út að borða á suður-afrískan stað á Miami Beach. Hittum þar nokkra félaga frá því í fyrra. Hér eru René frá Sviss og Erika frá Brasilíu.
Sigfús krúnurakaður og Gustavo frá Venezuela. Húsbóndinn afsannaði hrakspár eiginkonunnar um að rakvélasettið sem hann keypti í Costco í fyrra myndi aldrei vera notað með því að raka af sér allt hárið!!

Dave er forseti nemendafélags laganema við University of Miami.
Consuelo frá Kolumbíu er bekkjarsystir Ernu frá því í fyrra.

Á laugardagskvöldið 11. nóvember vorum við svo heppin að komast í íslenskt lambalæri hjá Önnu Maríu og Gulla. Þau vilja ekki segja okkur hvað barnið á að heita og því gengur hann undir nafninu Lilli á þessu heimili! Alveg
jafn fallegur fyrir því;)

Anna María í eldhúsinu með tilvonandi tengdamóður sinni, henni Herdísi. Takið eftir kjólnum - Miamiskur en þó cosmo.

Gulli og Sigfús.

Herdís stolt af barnabarninu.

Spennan eftir að komast í lambið leynir sér ekki hjá Gulla.

Stolt og glæsileg hjónakorn við fagurlega dekkað borð!

Forrétturinn; snapper (fiskur af amerískum ættum) og þorskur pönnusteiktur á salatbeði með parmesan og döðlum. Takið eftir listilegri framsetningu.

Fúsi sætur á svip.

Anna María. Glæsileg húsfreyja til orðs og æðis.

Gleði yfir forréttinum.

Sigfús sker lambið listilega. Í þunnar sneiðar eins og mamma og tengdamamma vilja.

Lilli.

Vanilluís með granítepli.

Hundkvikindi sem er stundum settur út á svalir hér við hliðina. Geltir hressilega - sérstaklega þegar Sigfús tekur myndir af honum.

Niðri á strönd er þetta útileikhús. Yndislegt veður þessa
helgina.

Fórum að fá okkur snæðing á ströndinni. Fallegur dagur og skemmtilegt mannlíf.





Líka skemmtilegt fuglalíf. Ef grannt er skoðað
sjást fuglar fljúga í V - magnað hvað þeir eru sniðugir!

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Til lukku með glæsilega myndaseríu Erna mín ; ) Það yljar manni um frostbitnar tær að sjá sólina og sumarið hjá ykkur!

kveðja Eva

8:04 AM  

Post a Comment

<< Home