Hafið bláa hafið - Myndir
SiglingaleiðinDAGUR 1 - BROTTFÖR FRÁ FORT LAUDERDALE
Það fyrsta sem blasir við manni, þegar í skipið er komið, er ákaflega fallegt miðrými sem nær frá 4. hæð skipsins og alveg upp á efsta dekk. Þar ganga lyftur sem eru úr gleri þannig að sést bæði yfir allt miðrýmið öðru megin og útá haf hinumegin.
Áður en lagt var í hann á laugardeginum þurftu allir að mæta á æfingu fyrir hugsanlegt sjóslys...
Við borguðum fyrir gluggalaust herbergi en vorum svo heppin að vera "upgreiduð" uppí herbergi með þessum líka flotta glugga. Sá sem framleigir okkur íbúðina er nefnilega að vinna hjá Royal Caribbean, sér um skemmtiatriðin hjá nokkrum skipanna og situr t.d. í stjórn Jewel of the Seas, skipinu sem við sigldum með.
Erna alltaf jafn fúl...
Siglt frá landi við Fort Lauderdale, stemning að fá sér kokteil og horfa á landið hverfa......
Strandgæslan fylgdi okkur úr hlaði
Strönd Fort Lauderdale, það var nokkuð þungbúið þegar við lögðum frá landi en það átti heldur betur eftir að breytast þegar karabíska hafið nálgaðist
Skip í fjarlægð. Komin útá rúmsjó og ströndin smám saman að hverfa úr augsýn...
Skál!!!
Það eru haldin mikil og vegleg listaverkauppboð um borð og meðal verka voru verk eftir Rembrant, Picasso, Chagal o.fl.
Horft niður af einum af fjölmörgum svölum í miðrými skipsins. Á þessu gólfi var mikið tjúttað og hljómsveit spilaði öll kvöld sem og á fjölmörgum öðrum stöðum í skipinum...
Spilavítið um borð. Afar stórt og glæsilegt spilavíti. Þarna prófuðum við í fyrsta skiptið að taka þátt í slíkri starfsemi og náðum að tapa heilum 12 dollurum. Fórum í svokallaða rúllettu og unnum en töpuðum því náttúrulega um leið aftur. Mjög yfirveguð ákvörðun um sokkinn kostnað.....
Í miðrýminu.
Eitt af því flottasta við svona siglingar er kvöldverðurinn. Þar er setið til borðs með sama fólkinu öll kvöldin og sömu þrír þjónarnir þjóna til borðs. Þetta gerir ferðina mjög persónulega. Við vorum ákaflega heppin með borðfélagana okkar, skemmtileg fjögur manna fjölskylda frá Atlanta Georgíu og önnur til viðbótar frá Californíu. Hér eru dætur Steve og Dawn (hjónin frá Georgíu) en þær heita Jackie og Colleen
Steve og Dawn frá Georgíu. Steve er alveg ótrúlega fyndinn náungi og hélt hann uppi fjörinu öll kvöldin. Merkilegt hvað hann var viðkunnanlegur miðað við að vera harður Repúblikani og stuðningsmaður Bush......
Og hér erum við á fyrsta kvöldinu
Það er búið um tvisvar á dag. Fyrst á morgnana og svo aftur á kvöldin. Súkkulaði sett á koddana og dagskrá morgundagsins. Það er alveg hægt að venjast svona meðferð get ég sagt ykkur....
Horft útum gluggann á káetunni okkar
Þessar helstu nauðsynjar voru um borð svo sem klifurveggur og golfermir
Íþróttavöllur þar sem hægt var að spila körfubolta, blak, fótbolta o.sfrv...
Vatnsrennibraut fyrir krakkana
Púttvöllur
Á herberginu var sjónvarp með fullt af stöðvum. Snilldin fólst hinsvegar í því að hægt var að gera nánast allt í imbanum, panta útsýnistúra í hverri höfn, panta tíma í spa, panta tíma í golfherminum og panta morgunverð í rúmið....
Listaverk sem voru á leið á uppboð
Listaverkauppboðið í fullum gangi
Horft niður á fólkið á listaverkauppboðinu
Eins og áður segir þá er miðrýmið ansi magnað. Hér sjást nokkrar af svölunum þar...
Um borð eru nokkrar verslanir þar sem ýmis kauptækifæri bjóðast
Á hverri hæð er svona líkan af skipinu með yfirlitskorti af hæðinni
Það er hugsað fyrir öllum smáatriðnum. Í lyftunni er t.d. þetta skilti sem segir manni hvaða dagur er. Okkur fannst þetta fyndið fyrst en svo fór maður að skilja nauðsyn þessa þar sem maður verður svo hrikalega afslappaður í svona siglingu að dagarnir renna saman....
Horft út á hafið......
Sundlaugin. Tveir heitir pottar á þessu svæði en þeir eru líka víðar í skipinu
Báða dagana sem við vorum allan daginn á sjó var svokallað "formal night" og þá áttu allir að skarta sínu fínasta. Mjög hátíðleg stemning og á fyrra kvöldinnni bauð skipstjórinn farþegum í kampavínsfordrykk í Safari klúbbnum þar sem djasskvartet spilaði ljúfa tónlist. Hér sést skipstjórinn og einhverjir úr áhöfninni taka á móti fólkinu.....
Skipstjórinn
Djasskvartetinn
Fúsmundurinn í sínu fínasta pússi
Skipstjórinn bauð fólk velkomið og sagði okkur frá skipinu
Hér sést allt borðið sem við sátum með alla vikuna. Fremst til vinstri er Jonathan, þá pabbi hans Peter, Steve, Dawn, Colleen, Jackie, Erna, Sigfús, Debbie og Erica.
Á hverju kvöldi býðst gestum að sjá skemmtiatriði í leikhúsinu. Þetta leikhús er alveg ótrúlega flott, á tveimur hæðum með svölum og alles. Þetta kvöld var stand up kona sem var mjög fyndin vægast sagt...
Fólk að dansa í miðrýminu
Horft upp miðrýmið
DAGUR 3 - SAN JUAN, PUERTO RICO
Fyrri part dags vorum við enn á siglingu
Siglt inn til San Juan, Hér sést virkið Fuerte San Felipe del Morro

Gamli hluti San Juan
Strandgæslan fylgir okkur inn
Á áfangastöðunum voru alltaf nokkur önnur skemmtiferðaskip. Hér sést Endevour of the seas sem er líka í eigu Royal Caribbean, mjög svipað skip og okkar en aðeins stærra...
Lagst að bryggju í San Juan



Horft yfir til hins skipsins
Hafnarverkamenn að undibúa opnun landgangsins

San Juan er mjög falleg, nokkuð lík mörgum gömlum evrópskum borgum enda byggð upp af Spánverjum og Puerto Rico var spænsk nýlenda þar til það varð hluti af svokölluðu "Commonwealth of the United States" sem það er enn í dag. Okkur skilst að þau ríki sem hafa þann status séu með svipaða stöðu gagnvart alríkisstjórninni og ríkin í US..
Fúsmundurinn í þvílíkum ferðamannastaðalímynd í San Juan


Skoðuðum virki sem heitir Fuerte San Cristobal
Eins og sést setja skemmtiferðaskipin ansi sterkan svip á þessar eyjar sem eru hvað vinsælastar til að stoppa við á...
Ein "artí fartí"mynd fyrir þá sem slíkt kunna að meta....

Horft frá virkinu



Vorum dugleg að fá ókunnuga til að taka myndir af okkur
Mynd eftir listamanninn Ernu
Erna alltaf jafn draugfúl

Skipið okkar er þarna annað frá hægri
Einn og einn túrhestur skoðaði virkið enda mörgþúsund manns á hverju skipi


Og listagyðjan tekur völdin á ný...
Götur San Juan


Settumst inn á skemmtilegan bar þarna í bænum. Það ku vera til siðs að fullorðnir karlmenn flakki á milli húsa og spili fyrir mat eða peninga...
Það er ótrúlegt hvað hægt er að gera jólalegt þrátt fyrir 20-30 stiga hita og sól...



Já, maður er farinn að skilja af hverju skipafélagið heitir Royal. Þegar við komum aftur í skipið eftir San Juan var að sjálfsögðu búið að búa um og útbúa þennan líka flotta svan úr handklæðunum....
DAGUR 4 - ST. MARTIN
Komum snemma til St. Marteen, hér sést Erna horfa út um gluggann okkar á innsiglinguna...
St. Marteen var og er nýlenda Hollendinga og Frakka. Þessar þjóðir skiptu eyjunni bróðurlega á milli sín á sínum tíma og sú skipting er enn í gildi í dag. Okkur var t.d. sagt að það að hringja frá hollenska hlutanum yfir í þann franska sé millilandasímtal en að hringja úr hollenska hlutanum til Hollands sé innanlandssímtal....

Í miðbæ Philipsburg, höfuðstað hollenska hlutans.

Horft frá höfninni í Philipsburg. Við skoðuðum bæinn fyrir hádegi en eftir hádegi áttum við pantaða ferð í snorkl við eyju sem er á franska hluta eyjunnar. Nánar um það neðar...

Hver segir að það geti ekki verið jólalegt í karabíska hafinu?

Takið eftir konunni með jólasveinahúfuna þarna vinstra megin á barnum
Mikið af sólstólum en ekki margir í þeim eins og sést, enda snemma morguns
í miðbæ Philipsburg
Tókum vatnataxa aftur útí skipið okkar en það sést einmitt hér

Vatnataxar eru algengari í Karabíska hafinu en annarsstaðar
Gluggar á skipinu, einn þeirra er e.tv. okkar, allavegana af sömu gerð
Hver káetta er með sinn eigin þjón (sá þjónar þó mörgum káettum) sem man hvað maður heitir og er mjög persónulegur í alla staði. Okkar hét Rubin og er frá Indlandi. Væntanlega er hans upphaflega nafn eitthvað annað. Ég spurði hann um kaup, kjör og frí og kom þá í ljós að hann gerir 6 mánaða samning og fær ekkert frí á þeim tíma en þarf að fara í mánaðar frí eftir hvert 6 maánaða tímabil. Eina fríið þegar hann er úti á sjó er frá c.a. 13-18 og getgur hann þá skroppið í land og spókað sig....
Lagt af stað í snorklið. Þetta reyndist best heppnaði dagurinn af öllum inniverunum. Stórkostlegt að snorkla inn um framandi fisktegundir í karabíska hafinu. Við keyptum ódýra neðansjávarmyndavél og tókum fullt af myndum neðansjávar en það er filmuvél og verðið þið bara að fá að sjá þær þegar heim er komið....
Vorum ferjuð á báti útí eyju á franska hluta eyjunnar
j
Þessi var tekin rétt eftir snorklið


Eftir snorklið fórum við á bar í eyjunni en þarna var ekkert rafmagn og ekkert rennandi vatn. Hinsvegar vantaði ekki jólatréð....


Fólk að bíða eftir að vera ferjað aftur yfir





Þessar helstu nauðsynjar
Fjárfestum í bjór á meðan beðið var eftir bátnum sem ferjaði okkur aftur yfir

Svona glott kemur á húsbóndann þegar hann fær ískaldan bjór á eyju í karabíska hafinu...
Ekkert sérstaklega ósáttur




Lifandi krabbar í búri við bryggjuna


Lagt af stað til baka


Stímt í land
Og keyrt aftur yfir á hollenska hlutann
Í ferðinni var frábær fararstjóri, hún sagði okkur m.a. að bera á okkur sólarvörn því ekki vildum við lenda í því sem hún lenti í fyrst þegar hún snorklaði í sjónum við eyjuna. Hún sagðist nefnilega einu sinni hafa verið hvít en varð svona á litin eftir þessa erfiðu reynslu....
Og hvað er betra en að skella sér í leikhús í skipinu eftir velheppnaða snorklferð í karabíska hafinu?

Þetta var eiginilega besta stykkið sem sýnt var. Stutt atriði úr þekktum sýningum frá Broadway, glæsileg sýning í alla staði...


Og eftir leikhús fer maður náttúrulega á kampavínsbarinn á 5. hæð
Á fjórðu hæðinni voru barþjónarnir með sýningu í ætt við takta Tom Cruise og félaga í Coctail...
Og þetta kvöldið hafði þjónninn okkar útbúið hund úr handklæðunum og sett sundgleraugu húsbóndans á nefið á honum
Erica og Jonathan við kvöldverðarborðið
Peter, Colleen, Steve, þjónninn okkar Liveu og Dawn
Steve, Liveu og Dawn
Um borð er að sjálfsögðu gæsla fyrir börnin, þetta kvöld komu börnin í matsalinn og sungu fyrir matargestina

Deborah, Peter, Colleen og Jackie
Peter, Colleen, Jackie, Steve og Dawn
Hópmynd
Alltaf einhverjar uppákomur, þetta kvöld sungu allir þjónarnir Sole Mio fyrir gesti




Colleen og Jackie
Deborah og Peter

Colleen sagði þjóninum að hún vildi ekki neitt í eftirrétt, og þá kom þjónninn með þennan disk...
Liveo sýnir stelpunum töfrabrögð
Sem þær kunnu ágætlega að meta

Og hinn þjónninn, sem ég man ekki hvað heitir en er frá Chile, sast náttúrulega bara niður með okkur og horfði á skemmtiatriðin
En svo kom hann líka með sitt töfrabragð
Sem var ansi magnað
DAGUR 5 - ANTIGUA
Lagt að bryggju á Antigu. Antiga var áður bresk nýlenda og tilheyrir reyndar enn breska heimsveldinu. Þar er því keyrt vinstra megin á götunum..
Fórum í sögu- og útsýnistúr um eyjuna

Þarna á tanganum ku Eric Clapton eiga hús og í fjarska er víst meðferðarheimili sem hann kom á fót..




Nýr útsýinsstaður
Þar sem útsýnið var ekki af verra taginu
Eins og sést hér
Nýbökuð brúðhjón stilla upp fyrir myndatöku, voru svo trufluð við iðjuna þar sem það mátti víst ekki fara þarna yfir girðinguna

Uppstilling
Túrhestur dauðans...


Yoko Ono?
Því næst var farið að skoða flotahöfn sem Nelson flotahöfðingi notaði m.a. þegar hann var á þessum slóðum. Líkt og á hinum eyjunum sem við komum á voru Bretar að "sjálfsögðu" með þræla og er yfirleitt haldið uppá það þegar þrælahald var afnumið í hverju landi fyrir sig. Saga þessara eyja er saga nýlendukúgunnar þar sem innfæddir dóu út og hvítir lénsherrar fluttu inn þræla til að vinna að sykurgerð, saltvinnslu eða einhverju álíka. Mikið af fólkinu sem býr á þessum eyjum nú eru afkomendur þessara þræla...

Erna mundar vélina meðan húsbóndinn beið í biðröð eftir ókeypis rommi...


Enn í flotahöfninni bresku

Á leið í skipið á ný

Eftir túrhestarúntinn um Antíku tókum við það rólega í skipinu, fórum í sólbað og fengum okkur drykk...
Horft úr skipinu yfir höfuðstað Antíku, St. Johns


Í skipinu er garður sem hugsaður er sem afslöppunarstaður fyrir fullorðna, börn eru s.s. bönnuð þar. Þarna gat maður sest niður með góða bók, fengið sér drykk á barnum og farið í heitann pott.

Annar tveggja sundlaugarbaranna


Fengum okkur drykk í sólinni
Siglt af stað frá St. Johns, Antiku.


Fallegt að standa á þilfarinu þegar siglt var út frá Antiku og horfa á sólarlagið.
Og ekki er verra að hafa góðan drykk við hönd


Fúsmundurinn sáttur

Ákaflega fallegt sólarlag í karabíska hafinu




Gangurinn að káettunni
Horft útum gluggann okkar
Og nú var Ruben búinn að búa til fíl úr handklæðunum
DAGUR 6 - ST. THOMAS
Fallegt útsýni að vanda þegar morgunverðurinn var snæddur
Og eins gott að búið sé að skipta um plötu í lyftunni svo maður viti hvaða dagur sé.
Charlotte Amalie St. Thomas. Þessi eyja var áður dönsk nýlenda og á það því sameiginlegt með okkur Íslendingum en tilheyrir nú Bandaríkjunum en Bandaríkin keyptu eyjuna af Dönum fyrir einhverju síðan. Það er skondið að ganga um bæinn og sjá öll dönsku götuheitin. Hér erum við á leið í kláf sem bar okkur upp á fjall þar sem var ansi fallegt útsýni yfir svæðið.
Í kláfnum
Fyrsta skiptið sem undirritaður fór í slíkan kláf


Ansi fagurt útsýni og að sjálfsögðu eitt og eitt skemmtiferðaskip í höfninni

Jóla hvað?
Paradise point hét þetta víst




Blómadísin Erna

Frekar fallegt útsýni verður að segjast



Erna í enn einu fýlukastinu
Sumstaðar skera menn ástarorð í tré, hér eru kaktusarnir notaðir til þess brúks
Hvar er Erna?

Ég gæti alveg hugsað mér að búa á þessum stað

Veitingastaður uppi á topp

Þessi var ansi hress
Hvar er Erna? Verðlaun: 1 tími í ljósabekk í St. Thomas solarium
Páfagaukar

Á niðurleið

Danskan í fyrirrúmi í St. Thomas

Mange tak
Ætli þeir hafi líka fengið maðkað mjöl frá baunanum?

Magnaðir leigubílarnir í St. Thomas. Pickupar sem er búið að breyta til að koma eins mörgum og hægt er aftaná. Ekki viss um að þetta stæðist ESB staðla......

Á öllum viðkomustöðum okkar átti að vera sérstaklega gott að kaupa skartgripi, úr og vín. Taxfree og því ansi hagstætt...



Tókum leigara yfir á strönd hinum megin á eyjunni

Sjálfsmynd í taxanum
Frekar notaleg strönd verður að segjast






Í taxanum á leið heim aftur. Þessi var snilingur, hann fór ekki af stað fyrr en búið var að troðfylla taxann og voru þá c.a. 12-15 manns í honum...

Leiðin lá yfir hæð og sást vel yfir bæinn og höfnina
Í St. Thomas var hægt að kaupa mjög ódýrt áfengi. T.d. kostaði líter af Finlandia vodka kr. 500. Örlítill verðumunur miðað við ÁTVR.....
Og þegar heim var komið var Ruben búinn að föndra þessa forlátu kanínu fyrir okkur...
DAGUR 7 - Á SJÓ
Fúsmundurinn gerir sig klárann fyrir annað "formal night".

Reima skónna og svona
Kíktum á kampavínsbarinn fyrir mat

Skál!!!


Borðsalurinn, frekar glæsilegur

Hópmynd af borðinu

Þetta kvöld var humar í matinn

Pólski yfirþjónninn


Peter, Livieo og Deborah


Dawn og Steve
Leikhús eftir mat
Næstsíðasta kvöldið var gala buffet um miðnætti þar sem borðin voru skreytt með ísstyttum

Og nú var það api.........
DAGUR 8 - NASSAU, BAHAMAS
Ansi notalegt að vakna og horfa útum gluggann
Blakað í sólinni
Þyrlupallur í stefninu

Öll aðstaða er mjög snyrtileg og flott, karlaklósettið


Jólaskraut útum allt skip
Siglt inn til Nassau, Bahamas


Miðrými skipsins
Tókum vatnataxa yfir til Paradise Island

Skipið okkar

Skoðuðum hótel sem heitir Atlantis og er ansi íburðarmikið verður að segjast

Mikið af listaverkum



Neðanjarðar í kringum hótelið eru risastór vatnsbúr sem hýsa allskonar fiskategundir og hákarla





Þessir voru skondnir



Vatnahestar
Erna fyrir framan einn tankinn
Þessi var eiginilega doldið "krípí"
Þetta er ansi frægt hótel
Hákarl
Þessi var að vinna í hákarlabúrinu við að þrífa glerið, ekki starf sem ég myndi taka að mér.....
Magnað að ganga í röri í miðju búrinu




Komin í skipið á ný
Hittum Steve og Dawn á kampavínsbarnum fyrir mat
Kokkarnir sungu þetta kvöld
DAGUR 9 - HEIMKOMA
Fyrir framan lyfturnar í skipinu
Þurftum að bíða aðeins eftir því að komast útúr skipinu þar sem það er hægara sagt en gert að tollskoða um 3100 manns. En þessi ferð var í alla staði frábær og mælum við með því að prófa þetta a.m.k. einu sinni á ævinni....




2 Comments:
Halló! Ég kem með ykkur í næstu siglingu! Eigum við að segja heimsreisu? Gleðilegt nýtt ár!
Geggjuð ferð hjá ykkur og frábærar myndir. Þokkalega listrænir taktar hjá ykkur hjónum!
Gleðilegt nýtt ár! Vonandi sjáumst við oftar á nýju ári : )
knús og klem
Post a Comment
<< Home