Disney - Myndir
Erna og Guðrún frænka, eins og sést þá virðast fúlheitin vera í ættinni.....
Skrúðganga sem við mættum á leiðinni inn í garðinn.
Litlu frændur Ernu stilla sér upp við hlið einnar fígúrunnar. Þessi bláa mús kippti svo derhúfunni af Skúla rétt eftir að myndin var tekin.
Erna ásamt fjölskyldunni. Frá vinstri: Gunnar maður Guðrúnar, Erna, Eiríkur Logi, Pétur, Guðrún og Skúli. Neðst fyrir miðju er Gestur.
Póstkassi við heimili Mínu mús
Heimili Mínu Mús
Space mountain, einn frægasti rússíbani í USA. Hann er allur innanhús og þeir sem hætta sér upp í hann sjá mjög lítið hvað er að gerast í kringum þá. Við Erna fórum einu sinni í hann og mér bauðst að fara aftur með Gunnari og tveimur strákanna en afþakkaði pent. Nægði mér alveg að fara einu sinni í hann og komast lifandi frá því. Frekar sáttur við það bara....
Kælitæki fyrir sveitta gesti....
Skúli, Pétur og Gestur við einhverja fígúru
Andrés önd var á svæðinu og gaf eiginhandar áritanir...
Inn í heimili Mikka mús. Mikki mús virðist vera aðalatriðið hjá Disney. Held það geti stafað af því að hann var einn af fyrstu ef ekki fyrstu karakterunum sem slóg í gegn....
Rúmið hans
Eldhúsið, greinilega ekki duglegur að vaska upp...
Frændurnir fyrir framan tólmstundarherbergi Mikka. Þeir spila borðtennis þannig að okkur þótti tilvalið að stilla þeim upp þarna fyrir framan borðið hans Mikka.....
Fjölskyldan stillir sér upp.
Draumaveröld unga fólksins
Guðrún, Erna og frændur fyrir framan eitt helsta kennimerki garðsins, kastala Öskubusku....

Stytta af Walt Disney ásamt aðal fígúrunni, Mikka mús
Gestur litli á fílsbaki
Biðraðirnar í tækin gátu verið langar, best er því að taka svokallaða fast-passa en maður getur einungis tekið einn slíkann passa í einu og bíða svo eftir að hann tekur gildi. Þá fær maður að fara framfyrir...
Á leið í tæki sem heitir It´s a small world. Samstarfsfélagar Ernu höfðu mælt með þessu og þetta var svo sem ágætt en meira svona fyrir börn...
Í þessu tæki sigldi maður framhjá syngjandi brúðum sem komu frá hinum ýmsu löndum heimsins...
Donki kode eða hvernig sem maður stafar það nú annars.
Það var hálf súrrealískt að sigla þarna um og sama lagið sönglaði í eyrunum: its a small small world og svo framvegis...
Við erum orðin nokkuð fær í því að taka svona sjálfsmyndir.

Gestur að leika sér í buslugarði
Og þarna kemur bróðir hans og slæst með í för
Frekar sáttur
Og ekki versnaði það þegar hann fékk Mikka mús sleikjóinn
Í biðröð að tæki sem heitir Splash mountain. Erna ásamt frændum sínum þeim Pétri og Skúla.
Lagt í hann
Ýmsar fígúrur á leiðinni
Í þessu tæki var siglt á drumbi og á nokkrum stöðum var farið í væna salíbunu, sú versta var eiginilega beint fall niður.....
Mætt í enn einn rússíbanan. Gunnar og strákarnir
Góð stemning í bílnum eins og þar stendur
Það var laugardagskvöld og þá er alltaf eitthvað mikið að gerast. Til dæmis var mjög stór skrúðganga með ýmsum þekktum fígúrum úr Disney. Þær voru skreyttar ljósum og verður að segja að 1. maí gangan heima blikknar doldið í samanburðinum ;)




Um kvöldið var svo búið að lýsa kastalan upp og hér er beðið eftir flugeldasýningunni
Og hér er hún byrjuð. Mögnuð sýning alveg og samspil flugeldanna og upplýsts kastalans gerði þetta enn áhrifaríkara. Kaninn kann show-bissnesinn ansi vel verður að segjast....





Jólatré á aðaltorginu
Skúli keypti sér Mikka og Mínu og var ansi sáttur með það

Á sunnudaginn heimsóttum við svo fjölskylduna en þau leigja hús í Orlando. Hverfið er með öryggisgæslu og sér golfvöll. Það var eins og að vera staddur í bíómynd að vera þarna. Desperate housewifes stemning...
Ég, Gunnar, Skúli pabbi hans og Jóhanna systir Gunna fórum í golf. Tókum 9 holur. Veðrið var frábært og ekki margir að spila, algjör lúxus...
Gunni og Jóhanna systir hans
Pútt, þessi fór því miður ekki ofan í
Jóhanna bendir pabba sínum á hvert kúlan fór
Fallegt sólarlag. Að golfinu loknu héldum við Erna svo heim á leið eftir ansi vel heppnaða og skemmtilega helgarferð....
Yfir og út.

1 Comments:
Mikið rosalega hefur verið gaman hjá ykkur. Vildi óska að ég hefði líka verið þarna með stelpurnar mínar, þeim hefði nú ekki leiðst það. Ég sit annars bara í skólanum að læra og hitinn um frostmark úti.
Knús og kossar
Sigurlaug frænka
Post a Comment
<< Home