Kalifornía, skammtur 8 - Carmel og nágrenni
Síðustu tveimur dögunum af 12 eyddum við í faðmi þeirra Siggu, Dave og dætra þeirra sem búa í Carmel V alley sem liggur upp frá bænum Carmel þar sem Clint Eastwood var eitt sinn bæjarstjóri. Gríðarlega fallegt á þessu svæði og þau búa á alveg hreint stórkostlegum stað. Við fórum meðal annars í góða kraftgöngu með þeim og keyrðum Highway 1 til Big Sur en sú leið er fræg fyrir stórfenglegt útsýni út á Kyrrahafið og fyrir það hvernig vegurinn liðast um klettabeltið. Margar bíómyndir hafa verið teknar upp á þessum stað ásamt auglýsingum enda sjónræn leið í meira lagi. Þau hjónin eru mikið "gúrme-fólk" og dekruðu þau við okkur allan tíman með miklum kræsingum og eðalvínum. Ákaflega hlýlegt og fallegt heimili sem þau hafa komið sér upp þarna og stelpurnar mjög yndislegar og góðar.
Kárahnjúkastífla? Nei, þessa stíflu sáum við á leiðinni frá Turlock til Carmel Valley. Vegamyndir eru okkar fag, þ.e. sérstaklega Ernu þar sem ég er yfirleitt við stýrið (ég er nefnilega karlmaðurinn á heimilinu skiljið þið).
Önnur vegamynd eftir listamanninn Ernu, tekin á leiðinni til Carmel
Hún er bara orðin nokkuð dugleg í myndatökunni og húsbóndinn greinilega kominn með alvöru keppinaut í myndamaníunni....
Horft niður í Carmal Valley
Komin til þeirra Siggu og Dave, hér sjást þau undirbúa máltíð kvöldsins en þau eru mjög samhent í eldamennskunni
Dæturnar: Sonja til vinstri og Bríet til hægri
Horft út frá lóðinni þeirra, fagurt umhverfi eins og sést
Þau eru með sítrónutré í garðinum
Í garðinum
Sigga og Dave buðu íslenskri stelpu í mat sem heitir Arnheiður en hún er nýflutt á svæðið. Hér er Bríet að dást að barninu hennar
Dave er mjög húslegur eins og hér sést
Og ekki er Sigga síður húsleg
Ákaflega góð gulrótarsúpa var í forrétt þetta fyrsta kvöld
Stelpurnar ásamt gestinum í pottinum í garðinum
Bríet hreinlega elskar myndavélina eins og hér sést
Dave er mikill og góður gítarleikari, hér spilar hann með dóttur sinni sem var að taka sín fyrstu skref í gítarleik
Hundurinn Bella er algjört krútt eins og þar stendur
Og þótti m.a. gott að kúra í fangi Fúsa
Og Erna hafði líka gaman að henni Bellu

Morgunin eftir keyrði Sigga með okkur um hverfið og sagði okkur frá því helsta
Hér er hún að benda á eitthvað sem ég man ekki hvað var
Gríðarlega fallegur dalur verður að segjast



Húsið
Sigga og Erna fyrir framan húsið
Bríet og sonur Arnheiðar
Og Sonja bættist í hópinn
Garðurinn er mjög barnvænlegur
Síðar um daginn héldum við af stað í lítið ferðalag sem byrjaði í þorpinu og þar vöktu þessir mexíkanar athygli okkar en þeir mæta þarna og bíða í örvæntingu sinni eftir því að einhver komi og bjóði þeim vinnu í nokkra klukkutíma eða svo. Ótrúlegar aðstæður sem fólk býr við og maður finnur til með fólkii í þessari stöðu. Þorðum ekki að taka myndina með áberandi hætti og smelltum því bara af útum afturgluggann
Fúsmundurinn við stýrið
Við ströndina í Carmel
Sigga á ströndinni við Carmel, ákaflega fallegt strönd þó tiltölulega kalt hafi verið í veðri

Erna, Dave og Sigga á ströndinni
Og við hjónin, í baksýn má glitta í einn frægasta golfvöll í heimi, Pebble-beach, þar í kring eiga milljarðamæringar hýbíli


Sigga og Dave



Þessi höfðu það nokkuð kósí bara
Erna í rokkna stuði


Keyrðum svo meðfram ströndinni áður en við pikkuðum Carmen upp sem er brasilísk eiginkona Íslendings sem býr þarna á svæðinu og er vinur þeirra hjóna

Carmen og Sigga fyrir utan veitingastaðinn sem Carmen og Jón eiga
Við upphaf göngunnar
Dave, Sigga og Carmen reyndust í þvílíku formi og við ákváðum því að splitta hópnum þar sem við hjónin erum ekki alveg á sama leveli þessi misserin
Lagt í hann

Kaktusabrekka í upphafi leiðarinnar

Þarna sjást mexíkanar vera að nýta sér kaktusana en þeir nota kaktusa víst í matargerð





Indiana Jones....


Aðeins meira af háum trjám í Kaliforníunni heldur en á Fróni

Áð á góðum stað




Hingað og ekki lengra, hér ákváðum við að snúa við og sleppa því að fara allan hringinn, útsýnið stórkostlegt



Haldið niður á ný
Komin aftur í kaktusabrekkuna góðu



Horft út á bílastæðið
Keyrðum því næst til Big Sur en leiðin þangað er ótrúlega falleg eins og sést á myndunum hér að neðan



Margar gamlar og fallegar brýr eru á þessari leið



Erna fyrisæta
Fengum eitthvað fólk til að taka þessa fyrir okkur

Fúsmundurinn að gera góða hluti í fyrirsætubransanum
Þetta líka fallega bros........
Erna pósar
Muuuuuuuuuu

Kíktum svo í miðbæ Carmel en bærinn er eins og áður segir helst þekktur fyrir það að þar var Clint Eastwood eitt sinn bæjarstjóri.
Helsti sjarminn við þennan bæ er að þarna er fullt af listagalleríum sem gaman er að skoða
Horft útum glugga á búð sem Erna taldi nauðsynlegt að kíkja í
Eitt af fjölmörgum listagalleríum bæjarins
Við Sonja tókum eina skák en hún er nokkuð lunkin í þeirri íþrótt
Sigga og Dave
Bríet sýnir kúnstir
Þvílík teygja verður að segjast
Skál!!!!
Yfir og út (fyrir þá ótrúlega þolinmóðu sem náðu að komast alla leið hingað, ættuð skilið verðlaun þegar við komum heim)

3 Comments:
Komin í gegnum allan myndapakkann ! Skemmtilegar myndir að vanda.
dst
Ps. Hvað er í verðlaun ;)
Ég hlakka til að hitta ykkur á Íslandi ... áskil mér verðlaun auðvitað, skoðaði myndirnar með mikilli athygli.
Kveðja
Sigga
Loksins! Nei nei ekki viljað missa af þessum myndum.
Post a Comment
<< Home