Wednesday, January 03, 2007

Jól, áramót og Woody Allen - Myndir

Aðfangadagur í Hollywood. Við vorum nýkomin úr siglingunni, húsbóndinn hafði nælt sér í inflúensu síðustu dagana á skipinu og orðinn ansi veikur. Náði samt að skjótast út í Publix og kaupa í jólamatinn, svínakjöt, rauðkál, gular baunir o.sfrv. Spiluðum íslensk jólalög og höfðum það notalegt. Opnuðum þá fjóra pakka sem borist höfðu fyrir lokun skrifstofunnar í byggingunni en restin beið okkar svo á milli jóla og áramóta.

Húsbóndinn orðinn nokkuð veikur og við vorum nú ekkert að skella okkur í draugfín föt heldur höfðum þetta nokkuð afslappað enda ferðalúin.

Á jóladag var okkur boðið heim til Gennevie, Dale og litla stráksins þeirra. Hér sést hann með uppáhalds jólagjöfinni sinni, talandi vélmenni úr StarWars.

Og hann fékk líka barnamyndavél, digital

Glaðlyndur strákur

Á alþjóðlegu heimili er ekki hefðbundinn jólamatur. Á boðstólum var kínversk útgáfa af fondú. Þetta er víst oft á boðstólum í Kína og var mjög gaman að prófa þetta. Fullt af þunnt skornu kjöti, grænmeti, einhverskonar fiskibollum og tofu. Ég er ekki viss um að þetta hafi verið í jólamatinn á mörgum íslenskum heimilum í ár.....

Við Erna við jólatré heimilisins

Fúsinn veikur, ansi langvinn veikindi, er enn að jafna mig.

One happy family. Á Thanksgiving mættum við mjög fín til fara en þá voru þau bara á jogging fötunum. Við lærðum því af reynslunni í þetta skiptið og mættum "casual". Ekki viss um að margir heimilisfeður á Íslandi hafi verið í sama stíl og hann Dale þetta jóladagskvöld....

Það er doldið fyndið hvað kaninn er mikið fyrir límmiða með ástarjátningum á landi og þjóð. Hér stendur að mér sýnist "God bless America". Hvað er amerískara en dreki með slíkum límmiða og McDonaldsskilti í bakgrunninum? Myndin var tekin einhverntíman á milli jóla og nýárs...

Fórum í strandferð milli jóla og nýárs. Veðrið var fallegt en nokkuð kalt miðað við hvernig það hefur verið hér að undanförnu. Fólk var samt léttklætt og margir í sólbaði....

Jólaskreyting að hætti Hollywoodbúa


Komist þið ekki í jólaskap við að sjá þessar myndir?



Davíð sem var hér í Miami með okkur síðasta vetur var mættur á ný í bæinn um jólin. Hann var í ferð með móður sinni og bróður. Þau fengu lánaða íbúð á besta stað á South Beach í íbúðarturni sem nefnist Flamingo tower. Íbúðin er staðsett á 30. hæð byggingarinnar og þaðan er gríðarlega fallegt útsýni yfir hjarta Miami...........

Horft til suðurs úr íbúðinni. Við kíktum í heimsókn milli jóla og nýárs


Ekki fyrir lofthrædda


Við blokkina er að sjálfsögðu sundlaugaraðstaða með heitum pottum og meira að segja sandströnd.


Frekar næs verður að segjast. Hver kemst ekki í jólaskap við þessar aðstæður?

Davíð bara nokkuð sáttur


Næs

Bátar sigla þarna framhjá í gríð og erg


Og svo eru sumir á jet ski



Um kvöldið kom Gustavo vinur okkar frá Venezúela í heimsókn

Hér sést hann dást að útsýninu

Gustavo, Erna, Davíð og ég úti á svölum

Mætt niður á Lincoln road á South beach. Alltaf mikið og skemmtilegt mannlíf þar.

Fórum á mexíkanskan veitingastað


Jóla hvað?


Hver kemst ekki í jólastuð við að sjá skreytt pálmatré?

Þann 29. des fórum við Erna á tónleika með Woody Allen í nýrri menningar- og listamiðstöð hér í Miami sem kallast Carnival center. Hér sést yfir salinn...

Erna býður spennt eftir Woody....

Við vorum á ansi góðum stað og sáum sviðið mjög vel eins og hér sést

Bannað var að taka myndir á meðan tónleikunum stóð og voru verðir sem fylgdust með að gestir færu eftir því. Húsbóndinn náði samt þessu skoti af snillingnum og jazzhljómsveit hans en þeir spiluðu New Orleans jazz. Woody Allen er ansi magnaður á klarínettið verður að segjast og hann er alveg jafn væskilslegur "life" og hann er í myndunum. Var í druslulegri skyrtu og flauelsbuxum....


Close up! Því miður náðist ekki betri mynd en þetta af kappanum vegna þeirrar ströngu gæslu sem myndasmiðurinn var í. Woody (eins og ég kýs að kalla hann) mundar hér klarínettið......

Á gamlárskvöld fórum við til Davíðs og fjölskyldu á South beach. Hér sést Davíð taka á móti okkur með sólheimaglotti....

Davíð var líka að fjárfesta í nýrri myndavél svipaðri og minni. Hér erum við ansi hróðugir með fenginn....

Erna alltaf jafn hrikalega fúl, jafnvel þó það sé gamlárskvöld

Skál! Steinar, mamma Davíðs, Davíð og Erna.

Við hjónin

Davíð hringir heim og horfir um leið á ægifagurt útsýnið af 30. hæðinni


Davíð horfir niður, ekki fyrir lofthrædda

Svona er útsýnið af 30. hæð

Flott útsýni en flugeldasýningin var ekkert í samanburði við íslensku brjálæðina

Davíð mundar nýju vélina
Á gamlársdag er við hæfi að fá sér vindil þó menn reyki ekki á öðrum stundum

Fórum svo niður í bæ og þetta fólk varð á leið okkar niður að Ocean drive

Búið var að loka Ocean drive fyrir allri bílaumferð og var stemningin þar eins og á íslenskri útihátíð nema hvað það var tuttugu stiga hiti og engin rigning. Sá sem var síðast á klósettinu hefur verið mikið mál....

Þessi var í miklu stuði

Settumst niður á hamborgarastað og fengum okkur mjólkurhristing

Stuð stuð stuð





Davíð nokuð glaður bara


Fórum á stað sem heitir Clevlanders og er á Ocean drive. Staðurinn er úti og þar er m.a. stór sundlaug







Á leðinni heim mættum við þessari stúlku

Davíð dílar við leigubílstjórann

Hey man!

South beach á nýársdag

Yfir og út................

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Gleðilegt ár kæru vinir,
Sé að þið hafið haft það gott um hátíðarnar, enda ekki við öðru að búast þarna í landi yls og sólar.
En Woody Allen tónleikar........hvað gekk ykkur til????.......
kveðja Rúna anti Woody aðdáandi

1:02 PM  

Post a Comment

<< Home