Kalifornía, skammtur 6 - Turlock og nágrenni Part I
Í Turlock fengum við konunglegar móttökur hjá þeim Láru og Steve en Erna og Lára eru vinkonur til margra ára, voru m.a. saman í M.R. en Lára fluttist til Bandaríkjanna fljótlega eftir menntaskóla. Það var ákaflega gaman fyrir þær vinkonur að rifja upp gamla tíma og fyrir mig að kynnast Láru og hennar mjög svo skemmtilega og vandaða eiginmanni Steve. Þau eru bæði kennarar og vinna við það hér úti. Fyrsta daginn okkar keyrðum við upp til þjóðgarðar sem heitir Big Trees og ber nafn með réttu eins og sést hér fyrir neðan:
Vegamynd: Á leið til Big Trees þjóðgarðarins
Stoppuðum í litlum fjallabæ sem heitir Sonora en Lára og Steve áttu fyrst heima þar eftir að hún flutti út. Rákumst á þetta flippaða kvennfélag sem hittist reglulega og klæðist rauðu og nefnir sig Rauðuhattafélagið eða eitthvað álíka. Þær spjölluðu heilmikið við okkur....
Í miðbæ Sonora
Héldum svo áfram sem leið lá og vegurinn sem við keyrðum var ævintýralega hlykkjóttur og lá um mjög fallegt landslag...
Brú sem varð á leið okkar


Komin á áfangastað (ekki áfengisstað). Ég skellti mér til þjóðgarðsvarðarins og spurði um besta stíginn. Doldið spúkí vinnuaðstaða þarna mitt á milli gríðarlega hárra trjáa upp í hálendinu
Erna við upphaf stígarins
Þessi þjóðgarður heitir ekki Big Trees útaf engu
Hvar er Erna? Verðlaun: Tveggja tíma námskeið í slöngutamningu í Námsflokkum Trékellisvíkur

Fúsmundurinn uppi á gríðarstórum trjástofni
Hér sést hann betur, engin smá smíði


Ein artífartí að vanda
Þótt heimilisfaðirinn sé nokkuð búttaður sínist hann agnarsmár við þennan trjástofn




Hvar er Erna? Verðlaun: Ýsuhalastappa í Esso-sjoppunni á Þórshöfn



Hvar er Erna? Verðlaun: Viðkomandi fær að kjósa Árna Johnsen á þing í komandi Alþingiskosningum
Fúsmundurinn virðist agnarsmár í samanburði við þessi tvö tré
Ótrúlega flippaður náungi
Og talandi um flipp, sjáið þetta



Þetta tré var sagað sérstaklega í sundur svo við kæmumst leiðar okkar
Í þessum skógi eiga birnir að búa. Fórum aðeins að hugleiða tilvist þeirra á gangi okkar og varð það til þess að við hröðuðum göngu okkar örlítið það sem eftir var.....
Hvar er Erna? Verðlaun: þátttaka í magadanskeppni á Gauknum í Reykjavík


Sjálfsmynd, fundum engan kana til að taka mynd af okkur enda var enginn á ferli þarna...

Hvar er Erna? Nei, smá grín, hún er ekki á þessari mynd. Múhahahahaha
Hér var búið að höggva sér göng fyrir okkur svo við kæmumst leiðar okkar
Erna pósar
Og að "sjálfsögðu" biðu Lára og Steve eftir okkur með heitann mat og eðalvín. Mamma Steve var líka mætt en hún var ansi hress og skemmtileg...
Erna og Lára rifja upp gamlar góðar stundir og pósa svo fyrir hinn myndaóða Fúsmund....
Ekki gefast upp hér, veit að þið eruð komin með vökustaurana upp og allt en næstu færslur eru alveg hreint magnaðar verður að segjast og enginn vill missa af verðlaununum góðu. Kíkið því á síðustu tvær færslurnar:

0 Comments:
Post a Comment
<< Home