Monday, January 22, 2007

Kalifornía, skammtur 5 - Napa Valley

Næst á dagskrá í Kaliforníuævintýrinu var að kíkja á Napa dalinn þar sem vínrækt er í hávegum höfð eins og flestir vita. Stigum þar með í fótspor drengjanna í Sideways og fúlsuðum að sjálfsögðu við Merlot:

Skoðuðum tvo vínframleiðendur, annarsvegar Peju og hinsvegar búgarð Francis Ford Coppola, Rubicon. Hér erum við í Peju.

Fengum að smakka fimm tegundir og þegar við gáfum Cabernet víninu hans ekkert alltof góða einkunn (vorum mjög ánægð með allt annað) dróg hann fram Rollsinn þeirra í Cabernet vínum sem var svo sannarlega frábært. Keyptum svo nokkrar flöskur til að taka með í heimsóknirnar tvær sem voru framundan

Fyrir utan Peju



Vínþrúgurnar




Rubicon, vínbúgarður hins fræga leikstjóra Francis Ford Coppola. Ákaflega glæsilegur vínbúgarður og leikstjórinn leggur mikinn metnað í vínin sín



Fengum að sjálfsögðu að smakka nokkrar tegundir af vínunum hans Coppola. Erna bara nokkuð sátt með þetta...




Þarna er sýning með ýmsum munum frá ferli leikstjórans

Fengum all ítarlegan túr um garðinn með þessum heiðursmanni

Hann fór yfir sögu búgarðarins og sýndi okkur svo vínekrurnar og setur Coppola
Hér bendir hann á húsið þar sem Coppola á heima en hann hefur nýlega látið innrétta eitt húsið sem fullkomið hljóðstúdíó þar sem hann hljóðsetur nýjustu myndir sínar





Bíll sem sjálfsagt var notaður í einhverri mynd eftir kappann

Glergluggi sem Coppola lét gera fyrir sig


Einhverjir munir úr einni af mynd hans

Gistum á mjög góðu hóteli þar sem við gistum á mjög góðum prís þar sem janúar er mjög rólegur í túrismanum þarna



Lögð í hann til Turlock - Vegamynd eftir Ernu



Fúsmundurinn mundar myndavélina, myndefnið sést hér að neðan:

Þessar líka skemmtilegu vindmyllur


Vínþrúgur

Mætti til Láru og Steve í Turlock. Fengum höfðinglegar móttökur eins og nánar verður komið að í næstu færslu þessa maraþonsbloggs

Gatan sem þau hjón búa í

Við heimilishundurinn, Tuffy, urðum fljótt miklir mátar. Hér er ég að taka morgungöngu með honum fyrsta morguninn

Ekki gefast upp hér, fullt af fjöri og almennum skemmtilegheitum framundan í næstu færslum:

0 Comments:

Post a Comment

<< Home