Sunday, November 26, 2006

Nýr myndaskammtur - Everglades og fleira...

Þið verðið að afaka en tímaröðin er örlítið brengluð á þessu myndabloggi. Orsökin liggur í því að nú erum við búin að fjárfesta í nýrri myndavél, okkar fyrstu SLR digital vél. Fyrsta myndaröðin kemur s.s. úr nýju vélinni og svo tekur við myndaröð úr þeirri gömlu. Njótið:

Ein af fyrstu myndunum sem ég tók með nýju vélinni. Smá tilraun ;)
Myndin er tekin út um stofugluggan á íbúðinni okkar.

Þegar maður fær svona nýja græju myndast þörf fyrir ýmsa tilraunastarfsemi...

Ekki örvænta, þetta myndablogg verður ekki allt svona, þið þurfið s.s. ekki að kveikja í ykkur alveg strax (sbr. Airplane)

Fundum tennisvöll hér í grenndinni sem við megum spila á og það kostar ekkert. Þarna er úrvalsaðstaða og fjórir vellir. Fórum þarna á laugardagsmorgni og það var enginn að nota vellina.

Fúsi A. Þykjastaðveraalvöruljósmyndan

Og hér líka...

Talandi um kana og hunda...

Það er enginn maður með mönnum nema að eiga a.m.k. einn hund. Heima eru það jeppar og allskyns dót (sá sem á mest dót þegar hann deyr vinnur) en hér vinnur sem sagt sá sem á krúttulegasta hundkvekendið....

Á Flaglersafninu í West Palm Beach

Á Flaglersafninu í West Palm Beach

Erna á safninu góða, alltaf jafn fúl


Skemmtilegar styttur á Flaglersafninu


Fyrir utan safnið rákumst við á brúði og hennar fylgdarfólk sem var að undirbúa göngu hennar upp að altarinu. Frekar fallegt umhverfi...


Erna á ströndinni við safnið


Ákaflega fallegur dagur

Rákumast á þetta skrýtna en fallega tré fyrir utan safnið

Hér er það í öllu sínu veldi

Fórum í Everglades í dag. Höfðum farið einu sinni áður en þá á öðrum stað í þjóðgarðinum. Þjóðgarðurinn er nefnilega gríðarlega stór. Að þessu sinni keyrðum við Tamiami trail og fórum m.a. í Shark Valley og á Airboat þar rétt hjá. Mæli eindregið með hvorutveggja ef þið eigið hér leið um. Í Shark Valley var varla þverfótað fyrir Aligatorum

Það er gríðarlega fjölbreytt fuglaflóra í Everglades


Hér er fyrsti Aligotorinn sem við sáum. Stoppuðum bílinn og Erna tók þessa mynd í miklu panikki.

Þessi var við bílastæðið

Þetta eru sem sagt allt aligatorar en svo eru það crocodiles. Smá fróðleiksmoli: Aligatorar eru með flatt trýni, þeir eru mun hættuminni en krókódílar og ráðast víst ekki á menn nema í algerri nauðvörn. Þeir kunna best við sig í ferskvatni eins og í Everglades. Krókódílar eru með oddhvassara nef, þeir eru mun hættulegri en aligotorarnir og sumir segja að þeir séu hreinlega grimmir að eðlisfari. Þeir kunna best við sig í vatni sem er bæði með saltan sjó og ferskt vatn. Þeir vilja geta haft hvorutveggja. Þeir finnast því yfirleitt í útjaðri Everglades þjóðgarðsins þar sem þeir komast í saltan sjó og ferskvatnið í Everglades.



Hér liggur eitt stykki Aligator

Hér hefur hann sig til sunds

Syndir framhjá okkur

Hér er skemmtilegt sjónarhorn á Aligator á svamli

Og þarna er hann farinn framhjá

Fullt af fuglum svífa yfir manni þegar maður röltir um Everglades

Fugl að hefja sig til flugs

Aligator skríður uppá bakkann við bílastæðin

Og kominn þangað sem hann ætlaði sér. Virðast ekki vera hræddir við mannfólkið....

Engispretta

Fugl í feni


Hefur sig til flugs

Þessi er örugglega á leiðinni að lesa skiltið



Fuglar hvert sem litið er


Við löbbuðum aðeins hluta þessa stígs. Hægt er að leigja sér hjól og hjóla ansi langa vegalengd inní fenin að útsýnisturni sem þar er. Stefnan er að gera það einhvern daginn...


Ef þið rýnið í þessa mynd sjáið þið lítin aligator unga



Mamma með ungana sína

Þessi var svona eins og úlfurinn í Rauðhettu og úlfinum. Beið þarna í leyni eftir bráðinni ;)

Og koma svo.... nammi nammi namm....

Rétt sluppu

Nokkuð stór þessi

Þó þeir eigi að vera tiltölulega meinlausir langar manni ekkert mikið til þess að koma nær en þetta



Fólk að hjóla inní fenin

Fjölskylda með barn, spurning um að barnaverndarnefnd skerist í leikinn....


Fólk virðist ekkert vera hrætt að fara ansi nærri með börnin, enda eiga þetta víst að vera tiltölulega meinlausar skepnur, þ.e. aligatorarnir en ekki krókódílarnir.

Hér er ein fjölskyldan komin ansi nálægt einum


Fyndið að labba eftir þessum stíg. Ekki beinilínis eins og labba í Nauthólsvíkinni. Eða ég hef allavegana ekki séð svona aligatora liggjandi í makindum sínum útum allt þar.....


Þessir voru í nokkuð góðu stuði saman

Best að kæla sig aðeins


Hægt að kaupa sér far með svona "trömmum" sem keyra að útsýnisturninum



Fórum svo á airboat

Einn gæd og einn driver

Gædinn var ansi skemmtilegur og sagði marga velheppnaða brandara

Hér er hann að horfa á fugl hefja sig til flugs

Ferðin hófst á mun meiri hraða en við bjuggumst við. Við Erna fengum hálfgert hláturskast (svona panikk hlátur þið skiljið ;)). Hér er hún í slíku kasti....




Þeir voru flottir karlarnir. Keyrðu þetta ansi hratt til að byrja með en það var ansi gaman þó maður hafi fengið smá í magan....



Samferðafólk okkar tók þessa


Annar bátur fyrir aftan gædinn



Gædinn með fræðsluhorn. Margt áhugavert sem hann sagði okkur, m.a. það að vatnið sem notað er í S-Florida er mest allt úr Everglades. Tveimur lögum fyrir neðan vatnið sem við sigldum á. Hann sagði okkur líka frá því hvernig indjánar bjuggu í fenunum áður og margt fleira

Hér er hann að sýna okkur strá sem hann mælir með að við myndum borða mikið af ef við villtumst þarna. Víst mjög næringarríkt



Hann skar búta af stráinu og lefyði okkur að smakka




Aligator sem við sáum á leiðinni



Sýndi okkur krókódílatönn sem hann var með um hálsinn


Erna alltaf jafn fúl!

Annar aligator sem við sáum á siglingunni



Komin á leiðarenda

Annar bátur að leggja í hann

Anna María, Erna og lilli fóru í jólasjopping á miðvikudaginn. Nú erum við sem sagt komin á myndaseríu tvö en myndirnar í henni eru allar úr gömlu vélinni. Við erum því komin aðeins lengra aftur í tímann, s.s. miðvikudagur hér en myndirnar úr Everglades voru teknar í dag.

Stund milli sjoppingstríða

Á "Thanksgiving" byrjuðum við daginn á að fá okkur bröns hér í nágrenninu. Hér er húsbóndinn að leggja í kræsingarnar.

Ansi fint bara

Við í brönsinum

Erna sæta

Keyptum svo blöðin í blaðastandi hér í hverfinu

Og hér er Erna að lesa úti á svölum og fá sér kaffi

Bara nokkuð ánægð með þetta

Um kvöldið vorum við svo boðin í Thanksgiving dinner hjá vinnufélaga Ernu, manni hennar og syni.

Hún heitir Gennevie og hafa þær Erna náð mjög vel saman. Frábær matur og skemmtilegar samræður m.a. um hversu mikið "erkifífl" búskur er en svo virðist sem allir sem við tölum við séu á því að hann sé eitt það versta sem komið hefur fyrir Bandaríkin. Fengum ýmar djúsí sögur um hann og hans fjölskyldu en þau hjónin bjuggu einmitt í Texas áður en þau fluttu hingað til Florida...

Sonurinn var asskoti kátur bara...

Hér er hann að sýna okkur dótaherbergið sitt en þau búa ansi vel litla fjölskyldan. Drengurinn er s.s. bæði með svefnherbergi og dótaherbergi, hjónin eru að sjálfsögðu með sitt svefnherbergi en svo hafa þau bæði sitt hvort vinnuherbergið og klósettin eru alls fjögur í húsinu.....


Gennevie er kínversk og ólst upp í Kína og Hong Kong. Hér er mynd af afa hennar sem var frægur listmálari þar í landi og þekktur m.a. fyrir að hafa verið fangelsaður fyrir að verja frelsi sitt til að tjá sig í gegnum list sína. Það eru einhver listasöfn í Kína tileinkuð honum...

Á föstudaginn fórum við í mollið og það var heldur betur orðið jólalegt þar

M.a. búið að setja upp þetta jólalega lestaland



Ansi stórt jólatré..

Fólk að bíða eftir að komast með börnin sín í jólalest sem gekk um jólaland þarna í einum hluta mollsins


Lestin lögð af stað



Ansi glæsilegt verður að segjast

Risastórt



Annað risastórt jólatré

Þar var hægt að láta taka mynd af sér með jólasveininum, svona eins og maður sér í bíómyndunum...


Séð yfir biðröðina að myndatökunni með jólasveininum

Tvær fullorðnar konur kýldu á þetta líka




Jólasveinnninn séður úr lofti




JD í einum búðarglugganum
Brú opnuð til að hleypa seglbáti í gegn, tekin af Ernu í dag á leiðinni í Everglades

Á leiðinni í Everlades sáum við þenann furðulega skóg, virtist sem kveiknað hafði í skóginum.


Vegamynd - Á leið í Everglades í dag


Fúsinn með nýju myndavél heimilisins

Ansi ángæður með þetta


Í upphafi ferðar á loftbátnum

Yfir og út.............