Helgarferðin
Á föstudagskvöldið fórum við niður á Fort Myers-Beach sem er líflegasta hverfið á svæðinu. Þessi mynd er úr fókus en það náðist ekki skárri mynd af gönguötunni og verður þessi því að duga. Þrátt fyrir að þarna hafi verið þó nokkuð líf komst það ekki í hálfkvist við staði eins og South-Beach, Key-West og bara Miami og Hollywood yfir höfuð. Áttuðum okkur eiginlega á því í þessari ferð að Miami og nágrenni auk Key West hafi einfaldlega uppá svo margt að bjóða, þetta virkaði meira eins og að koma í sveitina. En mjög afslöppuð og kammó stemmning og það var alveg eitthvað fjör í fólkinu..
Löbbuðum á bryggju sem liggur útí sjó þarna við ströndina. Skemmtileg útsýni í átt að landi en birtuskilyrðin ekki uppá það besta fyrir myndatöku.
Erna alltaf jafn fúl
Á laugardagsmorgunin fórum við í dagsferð yfir á Sanibel og Captiva. Sjarminn við þessar eyjar er hvað það er friðsælt þar og strandirnar eru ákaflega fallegar.
Mjög rólegt og ekkert svo margir mættir á ströndina, hér í Hollywood og South-Beach er yfirleitt allt troðið á svona góðviðrisdögum og mikið líf og fjör. Sjarminn hér felst sem sagt í kyrrðinni og rónni........
Fólk mætir vel útbúið á ströndina, sólhlíf, kúler og það helsta sem þarf til að gera dvölina bærilega í hitanum. Hitinn þessa helgi var mjög mikill eða um 33 gráður báða dagana..........

Í svona miklum hita er nauðsynlegt að skella sér í sjóinn og kæla sig aðeins.
Erna kældi reyndar bara lappirnar.......
Ein listræn......
Og önnur.......
Fúsinn í öllu sínu veldi!


Hinn frægi viti á Sanibel. Magnað alveg hvað hægt er að gera litla hluti að miklu aðdráttarafli í ferðamannabransanum. Þegar ég leitaði að hóteli á netinu var yfirleitt tekið fram hversu stutt eða langt viðkomandi hótel væri frá þessum vita. Held að við íslendingar ættum aldeilis að geta markaðsett alla vitana heima sem eru margir hverjir miklu flottari en þessi ;)



Og enn ein listræn, tásubað okkar hjóna eftir strandferðina.....
Annað atriði sem þeir markaðsetja þessar eyjar fyrir er að þarna séu svo mikið af skeljum í sandinum. Þeir hafa meira að segja komið upp heljarinnar skeljasfani til að draga að túrhesta. Málið er nefnilega að sandurinn á austurströndinni hjá okkur er laus við þessar skeljar en ekki þarna á þessum slóðum. Við Íslendingar ættum aldeilis að geta markaðssett skeljar til að draga að túrhesta.............
Hér má fræðast um skeljarnar góðu
Og hér líka
Og Erna alltaf jafn helv. fúl
Komum við á litlum krúttlegum veitingastað á leið okkar í þjóðgarðinn
Eitt af því frábæra við Sanibel er að þar er mjög vel hugsað um gangandi og hjólandi vegfarendur. Stígarnir eru mjög góðir og markaðssetja þeir hjólreiðar sem afþreyingu sem hægt er að stunda á eyjunni. Hægt að leigja sér hjól og taka nokkra daga í að hjóla þarna um......
Hér er fræðsla um muninn á krókódílum og aligatorum. Í stuttu máli felst munurinn aðalega í tönnunum og kjaftinum. Það glittir aðeins í eina eða tvær tennur fremst í kjaftinum á aligatorum og þeir eru með breiðara nef ef þannig má að orði komast. Krókódílar eru hinsvegar með nær allar tennurnar utaná kjaftinum og eru þær stórar og mjög áberandi. Ekki er mikill munur á stærðinni en krókódílarnir eru eitthvað örlítið stærri en aligatorarnir að meðaltali..........
Fórum með "gæd" í gegnum þjóðgarðinn á eyjunni...

Þessi þjóðgarður er aðallega þekktur fyrir fjölbreytt fuglalíf
En svo eru líka krókódílar og aligatorar að svamla þarna um. Til hægri á myndinn má sjá glitta í einn. Eins gott að veiðimaðurinn festi ekki í hann og dragist út á vatn.........
Fyrir tveimur árum fóru fellibylir ansi illa með þennan þjóðgarð og hér má sjá ummerki um það...........
Gædinn segir spekingslega frá plöntulífinu í garðinum...
Sagði okkur m.a. frá þessari plöntu sem er þeim eiginleikum gædd að geta drukkið í sig saltvatn og skilið saltið frá vatninu. Ef rýnt er í myndina má sjá salt kristalla á laufblöðunum en plantan skilar saltinu einmitt út í gegnum laufblöðin. Hann lét okkur smakka og það hefði vel verið hægt að hrista bara af plöntunum saltið yfir á poppið sitt án nokkurra vandræða...
Skemmdir eftir fellibylina





Ibis fuglar
Ibis fugl efst í trénu
Ef grannt er skoðað má sjá þvottabjörn á þessari mynd, í miðju neðarlega.
Keyrðum svo út á eyjuna Captiva sem við vorum sammála um að gaman væri að eyða tímanum á í rólegheita fríi með góða bók á ströndinni....
Einhver að taka á loft í fallhlíf
Hægt að leigja jet-ski en það gerðum við á Key-West um síðustu jól og var það ansi eftirminnilegt verð ég að segja...
Komin heim eftir langan dag í 33 gráðu hita og sól. Fengum okkur eins og einn drykk og horfðum á sólarlagið í sundlauginni á hótelinu okkar sem reyndist bara vera ask. gott. Good value for money eins og þar stendur.....
Fórum aftur niður á Fort-Meyers Beach að borða á laugardagskvöldið. Við erum orðin ansi fær að taka myndir af okkur sjálfum og koma langir hrammar húsbóndans sé vel við þá iðju.....
Á leiðinni í bílinn skoðuðum við í búðarglugga og rákumst við þá á þessi skemmtilegu skilaboð. Höfum orðið var við það að meira er af svona þjóðrembu og stórabróðurskilaboðum fyrir utan Miami-svæðið. Suðurríkin láta ekki að sér hæðast hvað þetta varðar.........
Þetta er nú tiltölulega saklaust en sami búðareigandi, greinilega þjóðrækinn með eindemum....
Á sunnudaginn komum við við í Naples sem er borg ríka fólksins. Þar var einhver "stone-crab" hátíð í gangi með listrænu ívafi....
Fullt af listafólki að reyna að koma sér og verkum sínum á framfæri
Þið látið mig bara vita þegar þið eruð komin með ógeð á pálmamyndum
Fúsi ferðalangur
Steinkrabbarnir frægu. Við höfðum þetta einmitt í forrétt um áramótin síðustu.
Minnti mig á Grafarvogsdaginn sem ég kom að því að skipuleggja tvisvar hér um árið. Hér er einhver hljómsveit sem minnir á Þrjú á palli. Skemmtilega sveitó eitthvað.....
Á leið heim - vegamynd



Það er alltaf gott að koma heim og í hverfinu okkar var einmitt lista- og tónlistarhátíð og næstum því eins og kópí peist frá Naples...
Yfir og út...............
