Tuesday, January 23, 2007

Kalifornía, skammtur III - San Fran Part III

Á þriðja degi okkar í San Francisco döðruðum við aðeins við listagyðjuna í okkur og skoðuðum hið fræga SFMOMA nýlistasafn sem er eitt af því stærsta í Bandaríkjunum. Þar sáum við m.a. mjög áhugavert videolistaverk sem ég kem betur að og svo verk eftir helstu snillinga listasögunnar svo sem Picasso, Monet og hvað þeir nú allir hétu. Mjög skemmtilegt að skoða sig um þarna og Ólafur Elíasson ku vera að fara að sýna þarna á næstunni. Einnig skoðuðum við ráðhús borgarbúa og gengum í gegnum róna og útigangsmannahverfi sem var ansi skrautlegt:


Ráðhúsið í San Francisco




Stjórnmálafræðingurinn pósar fyrir framan ráðhúsið


Maður í hugleiðslu


Hvað ætli hann sé að hugsa um? Um frið á jörðu eða jafnvel brauðristina heima hjá sér? Þegar stórt er spurt er oft fátt um svör.....




Stytta á torgi þarna rétt hjá ráðhúsinu, takið eftir fuglinum





Eitt af einkennum San Francisco er að þar er mikið af útigangsmönnum. Við gengum í gegnum hverfi þar sem var mikið af þeim og okkur var hætt að lítast á blikuna þegar við vorum búin að labba framhjá fjölda einstaklinga sem voru að hrópa út í loftið og tala við sjálft sig. Sennilega er geðheilbrigðisþjónustan ekki uppá marga fiska á svæðinu...



Smá lúr


Nordström, komum þar við og fengum okkur að borða


Húbóndinn fékk smá myndaæði þar sem rýmið var ansi flott þarna, þið verðið bara að reyna að þola þetta....


Hang in...








Ein af ástæðum þess að San Francisco er eins frábær og hún er er svona stemning. Fullt af opnum almenningsgörðum þar sem fólk safnast saman og "tjillar" eins og þar stendur




SFMOMA safnið fræga



Og Erna pósar


Inni í safninu, bannað að taka myndir af sjálfum verkunum en hér er inngangurinn


Horft upp til lofts







Á efstu hæðinni er flippaða horn safnsins


Þar sem videolistaverkið var til sýnis en það heillaði okkur. Það er eftir listamann sem fór til Tyrklands með karokee græjur og auglýsti eftir þátttakendum til að syngja Smiths lög. Útkoman er mögnuð og oft á tíðum grátbrosleg. Djúpa pælingin er sú að vestulönd líta oft á Tyrki sem einhverja fundalmentalista en svo er til fullt af fólki þar sem kann smiths lög utan að og sýnir það hvað heimurinn er í raun lítill og líkur. Eða þetta var allavegana svona lausleg túlkun einhvers í sýningabæklingnum. Aðallega bara frumleg og góð hugmynd...


Hang the Djs og svo framvegis


Á leið heim á hótel


Union Square, skemmtileg útfærsla á bílastæðahúsi, sést varla annarsstaðar frá en þessu sjónarhorni


Götulistamaður


Það þykir sport að hanga utan á trömmunum. Ekki viss um að staðlar ESB myndu leyfa slíkt...



Og svo er bara að halda áfram í baráttunni og klára allt Kaliforníubloggið sem telur "einungis" átta færslur í heildina:

0 Comments:

Post a Comment

<< Home