Tuesday, January 23, 2007

Kalifornía, skammtur I - San Fran Part I

Í San Francisco dvöldum við á York hótelinu sem er nærri miðbænum og Union Square. Borgin heillaði okkur uppúr skónum og er hún allavegana á topp 2 listanum yfir borgir sem við höfum heimsótt. Borgin er þvílík snilld og kannski bara best að láta myndirnar njóta sín:

Vorum ansi ánægð með York hótelið. Miðsvæðis og flottur hótelbar sem gaman var að setjast niður og fá sér eins og einn drykk eða svo. Í þessu hóteli var mynd Alfred Hitshcock Vertico tekin upp. Við fengum að sjá eitt herbergjanna sem tengdist myndinni fyrir algjöra tilviljun....

Brekkurnar eru doldið brattar í San Fran


Trammarnir í borginni eru frægir, þeir eru friðaðir og mjög vinsælt er að ferðast með þeim, sérstaklega á meðal túrhesta


Á Union Square



Minnismerki á Union Square

Jólatréð var enn uppi þrátt fyrir að kominn væri miður janúar

Listamenn á union Square




Skemmtilegur arkítektúr



Brunastigarnir utan á húsunum eru ansi einkennandi fyrir borgina. Mín kenning er sú að sett hafi verið strönt reglugerð um þessi mál eftir risaskjálftann 1906 en miklir brunar blossuðu upp í kjölfar hans og er sagt að eldurinn hafi jafnvel valdið meira tjóni en skjálftinn sjálfur.....

Inngangurinn að Chinatown í San Francisco. Það er ótrúlegt að koma þarna. Eins og að maður sé staddur í Peking í Kína en samt er maður í Bandaríkjunum. Skiltin flest á kínversku, kínverska töluð í hverju horni, fólk að lesa kínversk dagblöð og ótrúlegt úrval af kínverskri vöru í búðunum. Enda er hlutfall Asíubúa hvað hæst í San Francisco miðað við aðrar borgir í USA.

Þessi var í þvílíku stuði að það hálfa væri miklu meira en nóg....


Peking hvað



Aðeins öðruvísi en t.d. í Orlando


Erna er með ótrúlegt útsölunef. Það dugar ekkert að dulbúast undir kínverskum orðum, Erna þefar svona kostakjör uppi hvar og hvenær sem er....

Brunastigarnir góðu





Okkur þótti merkilegt að sjá Bandk of America með kínverskum hætti



Þessir strætóar vöktu sérstaka athygli húsföðurins. Knúnir áfram af rafmagni sem þeir fá í gegnum ´línur sem strengdar eru á mili staura á götunni. Kannski eitthvað sem gæti hentað okkur Íslendingum....hver veit.....


Rákumst á kínverskan veitingastað (hvað annað) sem við skelltum okkur svo á

En Erna var samt ekki ánægð frekar en fyrri daginn

Okkur þótti þessi staður sérstaklega traustvekjandi þar sem þar voru nær eingöngu Kínverjar. Hér er kínverskur bjór sem húsbóndinn pantaði.

Við hjónin á torgi sem var ansi skemmtilegt


Torg eru svo mismunandi vel heppnuð. Sum eru steindauð eins og lækjartorg heima en önnur eru full af fólki eins og þetta. Þetta snýst allt um velheppnað skipulag. Þarna var tild dæmis allt fullt af bekkjum til að sitja á og einvhernvegin svo góð stemning

Fólk kom þarna saman og spilaði eitthvert spil sem við kunnum ekki frekari deili á


Dúfurnar viðrast sækja í styttuhausa


Ansi mikið líf

Fólk að spila eitthvert spil

Bygging sem vakti athygli húsbóndans. Veit ekki alveg hvað hún heitir en hún sést víða að í borginni




Og brunastigarnir góðu









Byggingin góða





Borgin er uppfull af skemmtilegum arkítektúr





Sa´nokkrar svona málaðar byggingar, skemmtilegar en ég veit ekki hvaða hvatir ráða þegar fólk tekur þá ´´akvörðun að mála heilu húsin svona






Fúsmundurinnn hvílist

Á leið upp að Coyt tower. Ansi brattar brekkur í borginni



Þessi mynd sínir ágætlega hversu brattar brekkurnar eru. Erna í fjarska (c.a. 60% ofar).

Bratt niður og svo aftur bratt upp, dæmigert fyrir borgina




Og Erna pósar, brúin í baksýn er ekki Golden Gate heldur önnur brúa sem ég man því miður ekki hvað heitir...

Áfangastaðurinn, Coyt tower

Brúða sem virðist skuggaleg

Turninn góði, þaðan er útsýni yfir alla borgina

Tröppurnar upp að turninum




Horft niður úr turninum

Komin upp í turninn

Séð út að Golden Gate



Erna virðir fyrir sér útsýnið







Komin niður úr turninum. Alcatraz í fjarska




Á leið niður hæðina





Svona er nauðsynlegt að leggja svo bíllinn rúlli ekki niður brekkurnar. Er víst kennt í ökuskólum borgarinnar....

Eitt af því sem geriri borgina svo skemmtilega eru fjölmargir almenningsgarðar þar sem fólk slakar á og nýtur lífsins



Svona blaðastandar eru ansi amerískir og nauðsynlegt að mynda þá










Union Square







Þetta var með brattari brekkum sem við sáum


Um að gera að vera óhræddur við að biðja gangandi vegfarendur um að smella af eins og einni mynd....

Þennan dag vórum við Mí gamla ferjubyggingu niður við höfn sem hefur verið endurgerð. Ákaflega vel heppnuð kuppbygging hafnarsvæðis sem við Íslendingar ættum að líta til varðandi uppbyggingu hafnarinnar í Reykjavík

Einfaldir trébekkir geta gert mikið

Útimarkaður











Ferjubyggingin sjálf hefur svo ölll verið gerð upp og þar er fjöldi "gourme búða". Hægt að fá sér kavíar og kampavín, franska osta osfrv






Horft út úr byggingunni á flóann





Í tramma á leiðinni á Fishermans Wharf


Þefað af ilmsalti á Fishermans Wharf


Jæja þetta er rétt að byrja núna. ekki nema 7 færslur til viðbótar . Ekki gefast upp núna þótt á móti blási:

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

USSSUSSUS! Maragar myndir! Hiihih

12:05 PM  

Post a Comment

<< Home