Tuesday, January 23, 2007

Kalifornía, skammtur II - San Fran Part II

Annar dagurinn í San Francisco var tekinn í könnunarleiðangur um tvö vinsæl hverfi eða svæði þar sem gömul ferjubygging við höfnina var öll tekin í gegn og gerð að sannkölluðum "gourme-markaði" og fyrir utan hana er útimarkaður þar sem hægt er að kaupa sér ýmislegt góðgæti og snæða á bekkjum við höfnina. Ákaflega áhugaverð framkvæmd sem hefur heppnast mjög vel því svæðið er mjög vel sótt og þykir vel heppnað. Við Íslendingar ættum að líta til svona vel heppnaðra framkvæmda varðandi uppbyggingu hafnarsvæða í borgum, það er nauðsynlegt að taka höfnina í Reykjavík í gegn. Við gætum einnig horft til Akersbrygge í Osló hvað slíkt varðar. En best að hætta þessu samfélagsröfli í mér og vinda sér í myndir annars dagsins í San Fran:



Á Fishermans Wharf. Líf og fjör.


Þarna er blómlegt mannlíf og t.d. ýmislegt fyrir börnin



Skemmtilegir glerskúlptúrar sem ég held að séu unnir í tölvu.


Hið alræmda Alcatraz, sést víða úr borginni


Þessi sæljón eru heimsfræg að mér skilst. Þau komu víst í auknu mæli inn í höfnina eftir jarðskjálftann stóra sem varð um 1996 að ég held. Í San Fran og nágrenni eru menn umhverfisvænir og í stað þess að hrekja sæljónin í burtu var ákveðið að leyfa þeim að vera þarna á bryggjunni. Magnað að fylgjast með þeim og þau virtust ekkert styggjast vegna allra túrhestanna....





Allskonar kræsingar út um allt



Þetta er sennilega frægasti róni Bandaríkjanna. Hann tók uppá því fyrir einhverjum árum síðan að fela sig bakvið runna í Fishermans Wharf og bregða fólki þegar það labbar framhjá. Maður myndi halda að fólk yrði reitt vegna þessa uppátækis en það er nú öðru nær. Fólk bregður virkilega illilega en fer svo að hlæja og gefur honum pening í hattinn. Held að hann hali dágóðri summu á þessu, sá allavegana smápeninginn hrúgast í hattinn þá stuttu stund sem ég var þarna. Það var virkilega fyndið að sjá hann í action og hvet fólk til að kíkja á hann ef San Francisco verður heimsótt einhverntíman í framtíðinni....



Money, money money......


Róninn sætir lags.....



Erna alveg að klepera



Það þykir fínt að nota almenningssamgöngur í San Francisco, svo fínt að fólk bíður í 30 mínútur eftir að fá að borga 1000 kall fyrir eina trammaferð. Þykir fínt að nota almenningssamgöngur í Reykjavík?


Aðalsportið er að hanga utaná. Líklega myndi ESB banna slíkt. Myndi sennilega ekki standast reglugerð númer 777 um öryggi farþega í almenningssamgöngum....



Við hjónin bíðum spennt eftir að upplifa trammaferðina


Þetta var endastöð sem við vorum á. Þessir trammar eru friðaðir og notaðar eru gamaldagsaðferðir til að snúa þeim til baka. Hér sjást þrír starfsmenn snúa trammanum á þartilgerðum hring sem sennilega er fjörgamall....


Á hótelbarnum var þessi forláta lampi. Spurning hvort femínastar heima á Fróni væru ánægðir með þennan kostagrip. Af hverju eru t.d. ekki lampar með karlmannslöppum líka? Slíkir lampar eiga að minnsta kosti að vera helmingur lampa á slíkum bar.....


Erna að drepast úr leiðindum


Alveg við það að fara að grenja


Og hér var hún hætt að ráða við sig.....


Ótrúlega litlir skammtar í Ameríkunni....


Stelpa sem við kynntumst þetta kvöld tók þessa mynd


Hér sést hún ásamt vini sínum....


Og nú er fjörið rétt að byrja. Ekki gefast upp núna, aðalbloggin sex eru framundan :

0 Comments:

Post a Comment

<< Home